23.2.2023 | 21:34
Fagra veröld
Það er óneitnlega kaldhæðnislegt að heyra stríðsáróður yfirvalda þessa dagana, með Katrínu forsætisráðherra í broddi fylkingar ríkisstjórnar og þægra þingmanna, auk yfirlýsingar þeirrar sem fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherrann eins og hann er titlaður, hefur hér fram að færa.
Í fréttum dagsins var haft eftir Antonio Guterres að sextíu aðildarþjóðir SÞ hefðu samþykkt í tilefni dagsins að fordæma innrás Rússa í Úkraínu fyrir réttu ári síðan, en hvergi minnst á að sá fjöldi nær þó ekki þriðjungi þeirra 193 þjóða sem skipa SÞ og tel ég harla litlar líkur á að gleymst hafi, eða ekki hafi verið leitað stuðnings allra þeirra þjóða sem augljóslega höfnuðu að taka þátt í fordæmingunni.
Það er þó enn ömurlegara að allt þetta góða fólk sem ber stríðsbumburnar með Kötu, lætur neyðarópin frá Palestínu sem vind um eyru þjóta, rétt eins og ekkert sé.
![]() |
Vill reka sendiherra Rússa úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég heyrði rétt í þessu frétt af Bylgjunni - og ekki lýgur hún, að fjöldi landa sem fordæma innrásina hafi náð 130 og einhver 30 setið hjá (eins og við hefðum átt að gera - að mínu mati) svo ég et í mig mínar fyrstu tölur.
Jónatan Karlsson, 24.2.2023 kl. 07:10
En þingsályktunartillaga um atburð fyrir 90 árum verður örugglega samþykktur samhljóða á Alþingi
834/153 þáltill.: hungursneyðin í Úkraínu | Þingtíðindi | Alþingi (althingi.is)
Grímur Kjartansson, 24.2.2023 kl. 15:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.