10.2.2019 | 10:18
Bestu hugsanleg úrslit.
Fyrri undanúrslit hinnar umdeildu Evruvision keppni voru haldin í Háskólabíói í gærkvöldi og er full ástæða til að óska aðstandendum og þátttakendum til hamingju með vel útfærða keppni.
Úrslit kvöldsins voru þau að lögin sem kjörin voru til að fara í úrslit, voru annarsvegar glæsilegt hefðbundið söngatriði Heru Bjarkar og hinsvegar hrár og ögrandi flutningur Hatara.
Burt séð frá niðurstöðu lokakeppninar í Laugardalshöll, þá er alveg öruggt að söng dívan Hera Björk mun hafa nóg að starfa á komandi mánuðum og árum, en skemmtilegast væri þó ef litla Ísland gæti sent hernáms óþokkunum í Ísrael ögrandi Hatara fingur.
Hatari og Hera í úrslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.