Ágæt bloggfærsla Björns Bjarnasonar endurtekin:

MeToo og McCarthyismi

Jón Steinar Gunnlaugsson sagði í grein sinni að hann væri meðal annars kallaður „viðbjóður“, „ógeð og „illfygliskarlagerpi sem þurfi að fokka sér“.
Við lestur greinar Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. í Morgunblaðinuí gær (19. okt.) þar sem hann lýsir persónulegum svívirðingum sem hann hefur sætt á FB-síðunni Karlar gera merkilega hluti rifjaðist upp grein sem vitnað er til hér fyrir neðan. Hópurinn sem stendur að síðunni segja að hún sé mikilvægur og valdeflandi vettvangur. Tilvist síðunnar og hópsins verði hvorki útskýrð né rökrædd við mann, Jón Steinar, sem skrifi feðraveldi innan gæsalappa og skilji ekki hvað „öruggt svæði er.“
Á visir.is segir að þetta komi fram í yfirlýsingu sem Sóley Tómasdóttir, Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir sendu á fjölmiðla laugardaginn 20. október.
Jón Steinar Gunnlaugsson sagði í grein sinni að hann væri meðal annars kallaður „viðbjóður“, „ógeð og „illfygliskarlagerpi sem þurfi að fokka sér“.
Brendan O‘Neill, ritstjóri vefsíðunnar Spiked-online, birti 20. september 2018 pistil sem hófst á þessum orðum:

„MeToo hefur opinberlega komist á stig McCarthyismans. Brottrekstur Ians Buruma frá The New York Review of Books er staðfesting, fyrir þá sem enn þörfnuðust hennar, á því að myllumerkis-hreyfingin snýst meira um hefnd og ritskoðun en réttlæti. Glæpur Buruma fólst ekki í því að hann snerti konu án samþykkis hennar eða veittist að samstarfskonum sínum með óviðurkvæmilegum orðum. Hann gerði ekki annað en birta ritgerð eftir karlmann (kanadíska útvarpsmanninn Jian Ghomeshi) sem var sakaður um kynferðislegt ofbeldi en síðan sýknaður fyrir dómi. Þegar unnt er að reka mikils metinn ritstjóra úr hópi verðugra fyrir að birta orð manns sem ekki hefur reynst sekur um neitt afbrot, áttar maður sig á því að maður lifir myrkva, ljóta tíma. MeToo er ljósmóðir þessarar miðaldalegu aðferðar til að hafa stjórn á þeim sem maður er ósammála.“

Greininni lýkur Brendan O‘Neill á þessum orðum:
„Það á ekki að reka Buruma, það á að fagna honum, hann hefur stuðlað að mjög mikilvægri umræðu um skelfileg áhrif MeToo á frelsi, réttlæti og kynlíf. Við eigum að verja hann og aðra MeToo villutrúarmenn áður en það er orðið um seinan. Áður en við búum við þær aðstæður að hver sá sem sækir um starf við blaðamennsku, á menningarsviðinu, í stjórnmálum eða skemmtanaiðnaðinum er fyrst spurður: „Ertu eða hefur þú nokkru sinni verið gagnrýnin(n) á MeToo?““


mbl.is Jón Steinar prófi „sitt eigið meðal“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta eru svo sannarlega orð í tíma töluð. Og meginvandinn er kannski sá að þegar maður skoðar það sem veltur upp úr fólki á borð við þessa þrjá einstaklinga sem þarna eru nefndir, dettur manni auðvitað fyrst í hug að þarna sé einfaldlega um að ræða fárárðlinga sem enginn tekur mark á. En raunin er að að það er stór hópur fólks sem tekur einmitt mark á fáráðlingum. Þar liggur hættan, nákvæmlega eins og á tímum McCarthys.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.10.2018 kl. 22:04

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Þorsteinn

Ég sá þessa ágætu færslu hjá Birni, en hann gefur jú ekki kost á athugasemdum, svo ég notaði copy/paste aðferðina, þar sem fjölmargar gæsalappir skila sér einna helst sem mergjuð blótsyrði frá tímum Andrésar og félaga.

Þessar ofsóknir sem hér um ræðir, minna auðvitað á McCartyisman, en óneitanlega ekki síður á galdraofsóknir, þar sem hinum ákærða gafst sjaldnast færi á að bera af sér ímyndaðar sakir.

Það eru konur á borð við Helgu Dögg Sverrisdóttur hér á vefnum sem reyna að koma vitinu fyrir kynsystur sínar og auðvitað nokkrar aðrar sem láta sannarlega í sér heyra, en eigi að síður þá virðast rök þeirra duga skammt gegn "móðursýkinni"

Jónatan Karlsson, 21.10.2018 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband