31.5.2018 | 04:54
ÖMURLEG NIÐURSTAÐA
Reykvíkingar höfnuðu spilltri og vanhæfri klíku í lýðræðislegri kosningu, en virðast eigi að síður ætla að fá yfir sig sama óþveran með liðsinni umskiptinganna úr Viðreisn.
Eiginmaður formanns Viðreisnar, þeirrar sem var innsti koppur í stjórn Geirs Haarde var að því ég best veit einasti kúlulánsþegi Kaupþings, sem fékk leyfi yfirmanna sinna að setja 1800 milljóna lánið í ábyrgðarlaust hlutafélag og hvað segir það manni um heillyndi fyrrverandi ráðherrans?
Viðreisn er flokkur sem ætlað var að ná til Evrópusinnaðra hægrimanna, en gengur nú glaðbeittur að því virðist í eina sæng með vinstri sinnuðum óvættum Reykjavíkur.
Þessi málalok munu auðvitað drepa Viðreisn í allri landsmálapólitík, svo hvað skyldi greiðinn hafa kostað?
Eiga eftir að ræða verkaskiptingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.