25.3.2017 | 21:03
Ekkert annað en hefðbundin rányrkja og kjördæma pot.
Þessi rúmi milljarður sem ráðherrann hyggst bæta í vegakerfi landsins dugir skammt gegn þeim tíu milljörðum sem samþykktar vegaáætlanir voru skornar niður um.
Líklega gengur þingmönnum ljúflega að samþykkja þriggja milljarða aukafjárveitingu úr sjóðum landsmanna til Vaðlaheiðarganga, sem er þó að nafninu til einkaframkvæmd undir merkjum Samherja og KEA.
Það skyldi þó aldrei hafa neitt að gera með þá staðreynd að Benedikt fjármálaráðherra er þingmaður N/A kjördæmis, líkt og Steingrímur forveri hans?
Dugar bara fyrir tveimur kílómetrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.