16.2.2017 | 22:19
Er Sjóvá búið að bæta þjófnaðinn?
Eins og einhverjir muna enn, þá rændi tryggingafélagið Sjóvá bótasjóð viðskiptavina sinna eins og hann lagði sig, fyrir tæpum tíu árum síðan.
Þáverandi ríkisstjórn vinstri manna ákvað að láta þjakaðan almenning bæta þýfið og er nú álitið að endanlegt tap ríkisins hafi numið u.þ.b. 4000 milljónum króna, sem lítill áhugi virðist nú vera á að endurgreiða.
Þessi ósvífni þjófnaður er ágætt dæmi um þá spillingu og einkavinavæðingu sem tíðkaðist þá og virðist enn dafna vel, eins og fréttin um þessar arðgreiðslur minnir óneitanlega á.
Það mætti sömuleiðis líka minna á hlut núverandi forsætisráðherra í hinni svokölluðu fléttu, sem þótti lítilvægur, en dugði þó líklega til að bjarga Engeyingum úr hengingar ólinni og gott betur, því harla ólíklegt verður að teljast að þeir frændur Bjarni og Benedikt væru nú ríkustu og voldugustu menn þjóðarinnar, ef þeir og fjölskyldur þeirra hefðu t.a.m. hafnað slyppir og snauðir eftir Sjóvár Vafninginn með hverju öðru almúga pakki í Breiðholti.
Sjóvá greiðir 2,6 milljarða í arð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Kt. 650909-1270, 8 ára. Annað fyrirtæki og aðrir eigendur. Reyndar búið að skipta um nafn, kennitölu og eigendur tvisvar síðan bótasjóðurinn var lánaður. Sá gjörningur kemur því núverandi eigendum og fyrirtæki ekkert við.
Ufsi (IP-tala skráð) 16.2.2017 kl. 22:56
Jæja
Jónatan Karlsson, 17.2.2017 kl. 07:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.