13.9.2015 | 16:38
Heimildamyndin: "Aðför að lögum"
Í tilefni af fjörtíu ára afmæli DV og viðtali á Útvarpi Sögu við tvo blaðamenn er störfuðu frá stofnun þess kemur skýrt fram að þeir gátu fært örugg rök fyrir því að símar þeirra hafi verið hleraðir af yfirvöldum.
Þessi upprifjun hvetur óneitanlega fólk og sérstaklega þá er yngri eru til að horfa á, eða rifja upp ágæta heimildamynd Sigursteins Mássonar um hin illræmdu Guðmundar- og Geirfinnsmál er enn hvíla eins og svartur skuggi yfir dómsmálum og reyndar allri löggæslu hér á Íslandi, þó svo helstu fórnarlömb þessa dómsmorðs týni óðum tölunni.
Spurningin er því einungis hvort harðsvíruðustu sökudólgar íslenskra sakamála spóki sig enn sem frjálsir og virtir borgarar í skjóli máttlausra fjölmiðla og vanhæfra dómstóla.
Frekari heimildir um málið má finna hér: www.mal214.com
DÆMIÐ SJÁLF
Hátt í 10 virkir glæpahópar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.