28.3.2015 | 10:02
Brjóstabyltingin 2015
Auðvitað eru íslenskar stúlkur jafn ólíkar og þær eru margar, eins og við á um ólík viðhorf þeirra til frelsunar geirvörtunar.
Líkt og ætíð, þá eru sumar þeirra siðvandar dömur á meðan aðrar eru lausgirtar og vergjarnar og allt þar á milli, eins og það hefur verið frá örófi alda, nákvæmlega eins og allstaðar í henni veröld.
Eitt er þó jákvætt við þessa nýju bylgju, en það er að búast má við aukinni aðsókn unglingspilta og útlendinga á sundstaði landsins auk þess að íþróttin "súludans" verður líklega að nýju hafin til vegs og virðingar á til þess gerðum stöðum.
Á þessum "súlustöðum" sem líkja mætti við einskonar meðferðarstofnanir, gæti velsköpuðum feministum þá gefist tækifæri til að iðka íþróttir og í senn viðra baráttumál sín fyrir hópi þeirra afturhaldssömu karla, sem þar myndu líklega safnast saman og reyna þannig að leiða þá villuráfandi hjörð í hinn eina "sannleika"
Stelpur komu út, bara berbrjósta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.