12.4.2014 | 18:15
Glaður og reifur
Það lítur út fyrir að Utanríkisráðherra-bjálfinn sé enn og aftur að misskilja eitthvað. Þó bandarísku ráðherrarnir hlægi með, eða öllu líklegar að Gunnari á þessum myndum, þá er nú erfitt að greina, eða jafnvel ímynda sér að hvaða leyti tengsl ríkjanna standi svo traustum fótum, líkt og haft er eftir Gunnari Braga í fjölmiðlum.
Það er þó óneitanlega fróðlegt að sjá Gunnar, rjóðan af stolti við hlið Victoriu Nuland aðstoðar utanríkisráðherra BNA og yfir-gjaldkera fjárstuðnings uppreisnarinnar í Ukrainu, en þó með endemum þekktust fyrir ódauðleg (hljóðrituð) ummæli sín, tengd því máli, þ.e.a.s.: "Fuck EU"
Fyrir fróðleiksfúsa sem vilja kynna sér frekar aðkomu hennar að innanríkismálum Ukrainu, þá geta þeir skoðað það hér:
"American Conquest by Subversion: Victoria Nuland’s Admits Washington Has Spent $5 Billion to “Subvert Ukraine” http://www.globalresearch.ca/american-conquest-by-subversion-victoria-nulands-admits-washington-has-spent-5-billion-to-subvert-ukraine/5367782
Standa vörð um gagnkvæma hagsmuni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.