Jón Bjarnason grætur opinberlega og biðst fyrirgefningar

Hér meðfylgjandi er grein eins þingmanna Vinstri grænna, sem hann birti hér á mogga-blogginu, án möguleikans á að bæta við athugasemdum við skriftirnar. Jón talar eins og hann hafi löngu yfirgefið VG og hafnað svikum flokssystkina sinna, en því er öðru nær. Hann er fullgildur hluti af þingflokki VG og er t.a.m. einn þeirra þingmanna sem tvívegis greiddu atkvæði með því að láta íslenska alþýðu greiða ófæra Icesave reikningana og nú rétt fyrir þinglok að tryggja auknar sponslur og hlunnindi til handa sér og sínum. Jón var ráðherra í þessari landsölu stjórn sem leynt og ljóst hefur unnið markvist, miskunar- og hvíldarlaust að því að koma föðurlandinu niður á hnén í hendur Evrópusambandsins undanfarin þrjú ár. Afglöp og óhæfi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde kemst ekki í hálfkvist við vandlega skipulögð skemmdarverk núverandi ríkisstjórnar gegn lýðveldinu Íslandi. Jón fær mögulega prik fyrir skötusels frumvarp og hressilega sixspencera en fyrir þátt sinn í svívirðilegu samsæri gegn fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar skipar hann sér meðal helstu óvina Íslands.

Iðrunarorð Jóns.........

"Miðvikudagur, 15. ágúst 2012
Orð og efndir í ESB- umræðunni
Vinstrihreyfingin grænt framboð var m.a. stofnuð á sínum tíma til að verja sjálfstæði landsins og standa gegn umsókn og aðild að ESB.
Aðrar meginstoðir flokksins eru umhverfismál, jafnréttismál og velferðarmál.

VG hefur fært miklar fórnir í þessu ríkisstjórnarsamstarfi með Samfylkingunni, misst öfluga þingmenn, stuðningsfólk, félaga og baráttufólk úr forystusveit til þess eins að þóknast Samfylkingunni í ESB-umsókninni, þessu eina baráttumáli hennar.

Meirihluti þingflokks VG hefur því miður stutt dyggilega öll þau skref sem hingað til hafa verið stigin í aðildar- og aðlögunarferlinu að ESB og nú síðast lagst svo lágt fyrir tæpum tveimur mánuðum að samþykkja aðlögunarstyrkina,(IPA), peningana, dúsurnar sem ESB bauð til að greiða fyrir í aðlögun Íslands og aðild að sambandinu

Það er því fagnaðrefni ef ráðherrar VG, þær Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir virðast nú átta sig á því að ESB-umsóknin var feigðarflan fyrir VG frá upphafi og getur ekki haldið áfram. Báðar lýstu þær efasemdum sínum um aðildarferlið að ESB í kvöldfréttum útvarps hinn 11. ágúst sl. Undir það hafa nú fleiri þingmenn VG tekið. Vonandi er þetta fyrirboði stefnubreytinga enda styttist í næstu kosningar og alvöruna sem þeim fylgir. Ég hef krafist þess að umsóknin verði afturkölluð hið fyrsta.

Þrengt að formanninum

Lítið hefur þó breyst í ESB-málinu frá því fyrr í sumar. Makrílveiðunum var bjargað með ákvörðun um veiðarnar fyrir sl. áramót. Aðlögunarferlið að ESB heldur áfram á fullri ferð, en jafnframt breikkar bilið milli grasrótarinnar og þeirra forystumanna VG sem ýta á eftir í þessu ferli.
" Villikettirnir" í VG hafa þó staðið vaktina og munu gera áfram. Svo sannarlega er gott, því fleiri félaga minna í VG sem hafa stutt umsóknina til þessa og lagt sál sína þar undir telji nú að endurskoða þurfi málið í heild sinni.

Orð eru til alls fyrst en að sjálfsögðu verður spurt um trúverðugleikann og efndir í þeirri umræðu.

Að fá fyrirgefningu og bæta ráð sitt
Menn munu vafalaust reyna að ná fyrirgefningu kjósenda VG og þjóðarinnar í ESB-málinu m.a. með því að ganga berfættir milli höfuðkirkna landsins.
Slíkt gerði Sturla Sighvatsson forðum í Róm og „lét hýða sig til blóðs fyrir kirkjudyrum“ til að fá fyrirgefningu synda sinna og ná sáttum við kaþólska kirkjuhöfðingja landsins. Áhorfendum fannst mikið til um.
Reyndar kom hann svo við á heimleiðinni í Noregi og sór konungi hollustueiða með afleiðingum sem öllum er kunn, en það er önnur saga. Hér sem fyrr munu verkin tala.
Það ber í sér feigð fyrir VG að ætla að ganga til kosninga með þetta mál opið og ófrágengið. Þetta skilja sem betur fer æ fleiri og fleiri.
Umsóknin verði afturkölluð

Að tillögu ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna samþykkti Alþingi að sækja um aðild að ESB. Ég var því andvígur og fleiri þingmenn VG greiddu einnig atkvæði gegn þeirri tillögu á þingi, enda gekk sú samþykkt þvert gegn stefnu VG og þeim loforðum sem ég og fleiri frambjóðendur gáfum fyrir kosningar. Því var jafnframt hafnað á Alþingi að þjóðin greiddi atkvæði um það fyrst hvort haldið skyldi út í vegferð aðlögunar og aðildar.
Það er mikilvægt að Alþingi afturkalli umsóknina og tryggi að ný umsókn verði ekki send nema að þjóðin hafi veitt samþykki sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Tillaga þess efnis frá mér og Atla Gíslasyni liggur nú fyrir Alþingi.
( Birtist sem grein í mbl. 14. ág.sl.)"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll ,ég vildi nú brýna stjórnarandstöðuna til að kæra (veit ekkert hvort það er hægt) að samþykkt Alþingis um aðildarumsókn að ESB var samþykkt án aðlögunar. Jónatan, ég legg til að við tökum hressilega á því,hrekjum þetta landssölulið út úr þinginu úr stjórnarráðinu, o.áfr. Getur verið að Össur hafi gert grein fyrir umsókninni á þann hátt, að heima héti það að kíkja í pakkann?? Svo oft hefur hann eða þau látið almenning halda það. Eitt gamalmennið í mínu nágrenni,margstagast á því að hún vilji sjá hvernig samningarnir líti út.Ég á fullt í fangi með að skýra fyrir henni hvað er í gangi,en viðkvæðið er,þeir segja það í sjónvarpinu. Er þetta ekki vítavert.?? Stærstu fjölmiðlarnir halla réttu máli,sníða frettir að óskum stjórnarinnar. Þetta er eins og í sv0rtustu einræðisríkjum. mbkv.

Helga Kristjánsdóttir, 16.8.2012 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband