Valda "jafnvægi"

N.k.laugardag mun Frú Clinton funda með Tyrkjum. Þá gefst færi á að fylgjast með þegar lokahönd er lögð á frágang snörunar, sem Írönum er ætluð. Tyrkir hafa lengi reynt að fá aðgang að evrópska stórríkinu og munu ekki láta á sér standa þegar tækifærið gefst. Fyrir aðframkomna Evrópu, væru stigvaxandi erjur við Sýrland og Jórdan og eftirfylgjandi styrjöld við Íran kærkomin vítamínsprauta til næsta áratugs eða svo. Hagsmunir Ísrael og Bandaríkjanna eru augljósir, en erfiðara að skilja afskiptaleysi Rússa og Kínverja. Í fljótu bragði virðast Kínverjar vera að styrkja stöðu sína nokkuð óáreittir í Afríku, en hvað með Rússa? Líklega eru þeir á þessum síðustu og verstu tímum bara sáttir við að fá að vera í friði með sín gömlu Sovétsku landamæri og landfræðilega nálægð við Norðurpólin Það eina sem tilfinnanlega vantar er réttlát reiði og eindreginn stuðningur almennings á Vesturlöndum við áformin, sem ég óttast því miður að spunameistarar valds og vopnaframleiðanda vesturlanda muni vekja með einfaldri sviðsetningu.
mbl.is Clinton horfir hýru auga til Afríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ábending um áhugaverða athugasemd Torfa Kristjáns Stefánssonar um frétt RÚV sem tengist þessu efni

Breskur ljósmyndari sem rænt var í Sýrlandi slapp í síðustu viku. Enginn Sýrlendingur var í hópi þeirra þrjátíu sem héldu honum föngnum en níu þeirra voru samlandar hans.

Rænt í Sýrlandi

John Cantile, sem er breskur sjálfstætt starfandi ljósmyndari, var rænt ásamt hollenskum kollega sínum 19. júlí síðastliðinn og haldið í viku. Cantile var haldið föngnum af 30 íslömskum vígamönnum sem margir voru frá Pakistan og Tsjetsjeníu. Tólf þeirra töluðu ensku og þar af 9 með hreim sem að sögn Cantile var augljóslega frá suðurhluta Lundúna.

Undarleg upplifun

Cantile lýsir flóttanum í dagblaðinu Sunday Times sem svo að hann hafi hlaupið, dauðhræddur, berfættur og handjárnaður, í landslagi sem minnti á skosku hálöndin, hundeltur af breskum ungmennum með kalashnikov-riffla sem skipað hafði verið að drepa hann. Hann sagði að þegar manni er rænt í Sýrlandi eigi maður ekki von á að það séu samlandar manns sem það gera, hvað þá að hvergi sé Sýrlendingur í sjónmáli.

Jónatan Karlsson, 6.8.2012 kl. 21:44

2 identicon

Ekta vestræn PK-fréttamenska. Enginn af þessum mönnum eru englendingar, en þeir hafa enskann ríkisborgararétt og þá er PK- fréttamennskan alltaf sú sama "Samlandar mínir enskir unglingar".

Ef ég fá japanskann ríkisborgararétt, verð ég þá japani.

Þetta er arabískur Al-Kætalýður á fullum sósíalbótum og með ríkisfang í Englandi, en þeir geta sjálfum sér um kennt, tjallinn.

Það eru Kínverjar sem eru að byggja upp Afríkuríkin með fjármagni, tækni og velvilja afríkulanda, sem USA ræður ekkert við. Þeir eru í eilífðar stríðsbrölti og eru búnir að missa af lestinni. Kellingin ætti að koma sér heim, hún er orðin dálítið þreytandi.

Bæði Rússar og Kínverjar vita hvernig vesturveldin hugsa og eru þess vegna ekki með í Sýrlandsdeiluni, en byggja upp varnarherinn í rólegheitum. Maður veit aldrei hvað þessum vesturlandabúum dettur í hug.

Sjáið fyrir ykkur þróunina. Áður var það Sovéttgrílan, en nú er það USA grílan.

Hvernig endar þetta?

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband