23.9.2025 | 11:04
Móðursjúkir Danir.
Líklega áttu dönsk yfirvöld, eða jafnvel einhverjir innfæddir óknyttastrákar heiðurinn af drónafluginu á Amager, sem í ljósi áróðurs þarlendra fjölmiðla, virðist hafa fengið meirihluta dönsku þjóðarinnar hreinlega til að pissa í buxurnar af hræðslu.
Líklega eru íslenskar valkyrjur þó óhultar, því þær ganga líklega hvort sem er með bleyjur alla daga í ljósi voðalegrar Rússagrýlunar, sem hér ríður röftum.
Það blasir auðvitað við að drónafréttin er einungis flutt taugaveikluðum Dönum í þeim tilgangi að bæta við ástæðum fyrir frekari vopnvæðingu Fjórða ríkisins og er það ekki í raun og veru fullkomlega órökrétt að láta sér í fúlustu alvöru detta í hug að Rússar gætu haft einhvern greinanlegan ávinning af því að ögra taugaveikluðum óstöðugum Baunum með svo gjörsamlega tilgangslausu athæfi?
![]() |
Mikil hætta á skemmdarverkum í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |