Er viðvarandi taprekstur á hóp íþróttum kvenna?

Í tilefni æfingaleiks og 7:1 tapi svissneska kvennalandsliðsins í fótbolta gegn U15 drengjaliði Luzern, þá var kvennaliðið harðlega gagnrýnt en íþróttafréttamaðurinn Christian Finkbeiner tók upp hanskann fyrir svissneska liðið og sagði meðal annars:

Karlafótbolti og kvennafótbolti eru tvær ólíkar íþróttir. Kvennaleikur er þrisvar sinnum hægari að meðaltali en venjulegur karlaleikur. Karlar hafa líkamlega yfirburði gegn konum og þannig hefur það alltaf verið.

Er okkur körlum ekki nokkur vorkun varðandi slæga mætingu á íþróttakappleiki kvenna, sem kvartað er yfir, útfrá einföldum og rökréttum útskýringum fréttamannsins.

Væri ekki ráð að fara að dæmi vina okkar vestanhafs og leggja meiri áherslu á glæsilegar fimleika sýningar fallegra stúlkna eða klappstýra á vinsælum keppnisleikjum karla og á þann hátt auka áhorf og tekjur íþróttahreifingarinnar í heild sinni.

Hvað huglægar íþróttir á borð við skák og bridds, þá tel ég auðvitað að konur geti keppt við karla á jafnréttisgrunni og kynjaskipting því hrein móðgun við þær.


mbl.is Mótherjar Íslands steinlágu gegn unglingaliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband