25.6.2025 | 14:54
Þjóðverjar vígbúast, enn á ný.
Var ekki samþykkt eftir síðustu stór styrjöld í Evrópu, að hafa taumhald á Þjóðverjum til frambúðar, hvað allan vígbúnað og hervæðingu snertir?
Þjóðverjar eru líklega mesta menningarþjóð Evrópu og örugglega þeir klárustu, en eigi að síður, þá eru þeir grimmir og samviskulausir, líkt og þörf krefst hverju sinni, líkt og t.a.m. margir gyðingar minnast enn.
Allt frá dauða foringjans og sjálfrar hugsjónarinnar, þá hafa undan rústum Þriðja ríkisins skriðið lífvænleg afkvæmi draumsins og náð þeim ótrúlega árangri, að margfaldast og ná sömu tökum á kvistlingum Evrópu, á nýjan leik, enn og aftur.
Það er grátbroslegt að verða vitni að því, að íslensk stjórnvöld bjóði þýskar flugsveitir velkomnar til loftrýmisgæslu yfir Íslandi, þó jafnvel einhverjir afar, eða aðrir ættingjar okkar hafi hreinlega verið drepnir með köldu blóði af þessum sömu germönnum og beiti öllum lymskubrögðum, til að komast undir yfirráð Fjórða Ríkisins.
![]() |
Söguleg ákvörðun í Haag: Stórauka útgjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |