24.6.2025 | 06:36
Ótrúverðugur Bandaríkjaforseti.
Því miður hefur Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna glatað öllum trúverðugleika með sviknum fullyrðingum og lygum síðustu daga.
Stórveldi og talpípur þeirra, jafnvel ráðherrar á borð við ræfilstuskuna Collin Powell sem reit nafn sitt og afkomenda í bækur mannkynssögunar, hafa oft og ætíð þurft að ljúga opinberlega, en þjóðarleiðtogarnir sjálfir hafa reynt að halda nafni og mannorði sínu óflekuðu, þó svo auðvitað blasi við að þeir eigi alla sökina.
Það er nefnilega eins með að vera lyginn og þjófóttur, því enginn er alla jafna áreiðanlegur, en stelur bara stundum og sama máli gegnir auðvitað um lygarann.
Því miður er enginn ástæða til að trúa orðum Trumps núna, heldur er líklegra að hann sé einungis að reyna að skapa svikalogn fyrir hina raunverulegu leiðtoga hans, svo þeir hafi nægt svigrúm til að skipuleggja varnir sínar.
![]() |
Trump tilkynnir vopnahlé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |