13.6.2025 | 02:14
Föstudagur þrettándi
Lengi hefur þessi dagsetning vakið óskiljanlegan óhug, án fullnægjandi skýringa, en gætu miðlar og sjáendur ekki einmitt hafa séð fyrir þessa atburðarás sem nú er hafin af fullum þunga í Ísrael og Miðausturlöndum?
Það er aðeins vonandi að sá heimsendir sem Biblían fjallar um, nái aðeins yfir þann heim sem þessir spámenn þekktu á þeirra dögum.
Vonandi eru Ragnarök okkar vestrænna þrjóta nokkrum öldum á eftir þeim ósköpum sem gyðingar og margir kristnir eru búnir að tönnlast á öldum saman og gæti einmitt nú á þessari stundu verið að raungerast.
![]() |
Ísrael gerir árás á Íran |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |