Skert mál-og skoðanafrelsi í Fjórða ríkinu, ESB.

Hér í þessari frétt segir frá blaðakonunni Svetlönu Burcevu, sem býr og starfar í Eistlandi, en þar var hún nýverið dæmd í sex ára fangelsi fyrir föðurlandssvik.

Glæpur hennar var að gefa út bók sem dómstóllinn áleit áróðursverk og fyrir að hafa á prjónunum frekari útgáfu rita sem óttast var að myndu innihalda lof á rússnesk sjónarmið.

Þetta er ekki eina dæmið um að skoðanir fréttamanna í Evrópusambandinu og leppríkjum þeirra á borð við Ísland séu ýmist bannfærðar eða kæfðar, líkt og tíðkast því miður hér hjá okkar allsráðandi fjölmiðlum.

Það er kraftaverki líkast að litli, stóri fjölmiðillinn Útvarp Saga fái enn að hljóma óáreitt og nýtur hún auðvitað aðeins stuðnings frjálsra framlaga, þó margir og jafnvel flestir fari dult með hlustunina.

Á Sögu má reyndar enn heyra fréttir og umfjöllun sem nú á síðustu tímum varða jafnvel fangelsun og útskúfun á Vesturlöndum, minnumst t.d. Julians Assange.

Hér á bloggi mbl.is má tjá skoðanir sínar, nokkuð frjálslega, þó ekki sé blogginu á þessa fyrrum risa íslenskra fjölmiðla beinlínis gert hátt undir höfði, borið saman við tískustrauma og mataruppskriftir, en eigi að síður virðingarvert framlag sem ber að þakka.

Hér ægir enn saman öllum skoðunum, allt frá ómengaðri Rússa aðdáun til blinds zionisma og opið fyrir athugasemdir, nema í þeim örfáu undantekningartilfellum þegar höfundi sjálfum brestur kjark eða þor.


mbl.is Blaðamaður í fangelsi fyrir föðurlandssvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband