4.10.2025 | 11:26
Móðursýki og galdrafár breiðist út í Evrópu.
Síðustu vendingar í Úkraínuátökunum, sem ekki ganga beinlínis reglulega vel, eru byrjaðar að hafa í för með sér hefðbundnar aukaverkanir, sem jafnvel minna á galdraofsóknir miðalda og síðar nornabrennurnar í Salem, undir lok sautjándu aldarinnar og loks vitfirrtan Volkssturm Josefs Göbbels í dauðastríði hins stórbrotna Þriðja ríkis Adolfs Hitlers.
Þó Ísland sé í nokkuri sérstöðu hér á mörkum Evrópu og Bandaríkjanna, þá gætir hér í ríkulegum mæli öfgafullra fylgifiska þessa hruns heimsyfirráða Vesturlanda, eins og engum ætti að dyljast.
Núverandi yfirvöld taka fullan þátt í að kynda undir allri tilfallandi móðursýki sem bláeygum þegnunum, líkt og öðrum vesturlandabúum er boðið upp á í stanslausri bábylju ráðandi fjölmiðla, þó nokkur blæbrigða munur sé á milli áróðursins austanhafs og vestan.
Sígillt áróðursbraggð nazista var að hafa lygina nógu stóra og ótrúlega, en hamra á henni stöðugt og látlaust og þannig myndi hún að lokum ná inn fyrir allar meðfæddar varnir áheyrendans, á borð við heilbrigða skynsemi, auk allrar fyrri vitneskju og nú erum við nákvæmlega að fylgja í fótspor heilaþveginna barna og gamalmenna Berlínar 1945, þegar við fylgjum glæpsamlegum yfirvöldum að málum og látum telja okkur trú um illan ásetning Pútíns og innrætis Trumps, svo ekki sé minnst á vaxandi loftlags-og veiru ógnir, auk meðfylgjandi kvilla á borð við nú síðast hlægilegt drónaflugið sem vætir nú buxur út um Evrópu alla og jafnvel hér.
![]() |
Við eigum að vera tilbúin en ekki hrædd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |