Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, bókun 35 o.fl.

Er það ekki alveg ótrúlegt að handfylli af íslensku stjórnmálafólki gangi ótrauð fram og beini öllum kröftum í þágu eigin óútskýrðra hagsmuna, jafnvel þó markmiðin gangi greinilega gegn þjóðarhagsmunum, líkt og áformin um bókun 35 og auðvitað niðurdælingu óþvertans frá Sviss, svo ekki sé nú minnst á lífshættulegar hernaðaraðgerðir gegn okkar fyrrum vinum, Rússum.

Auðvitað hef ég engar sannanir fyrir illum grun mínum, en ef allt færi á versta veg hér á Íslandi, þá tel ég allar líkur að hvorki Þórdís né þess vegna Bjarni Borgun Vafnings þurfi að reiða sig á betlistafi á höfðinglegum eftirlaunum þeirra á Havaí eða Suðurhafseyjum.

Önnur er sú nefnd sem ráðherrann Áslaug Arna státar hástöfum af í dag, hér í blaði föður síns af frábærum gæðum alþjóðlegs netöryggis okkar Íslendinga, en þegar betur er gáð, þá hefur Kína þó verið lokað til frambúðar og að því virðist af föður hennar sjálfum fyrir aðganginn að eftirsóttum síðum Morgunblaðsins í þar í landi, líklega vegna netöryggis, slæmra áhrifa og almenns óöryggis frá Rússum, eftir þeirra síðustu meintu netárás á sjálft flaggskipið í Hádegismóum í júní s.l.

Að lokum læt ég eftir lestur óþolandi daglegara frétta af ósvífnum kynferðisbrotum karla þá uppástungu fylgja með, að í stað niðrandi bótagreiðsla, þá verði fórnarlömbum óþokkana boðin áfallahjálp og líknandi sálfræðiþjónusta, þeim auðvitað að kostnaðarlausu.


mbl.is Þórdís boðar eitt frumvarp: Bókun 35
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. september 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband