Vegabréf okkar gjaldfalla í réttu hlutfalli við allt annað á Íslandi.

Ástandið á Íslandi er ekki gæfulegt, eins og blasir við hvert sem litið er. Í gær voru það íslensku flugfélögin Icelandair og Play, sem fjallað var um í fréttum og virtist niðurstaðan sú að ekki væri grundvöllur fyrir rekstri tveggja alþjóðlegra flugfélaga hér á landi og því réttast að sameina þau, líklega þá með það fyrir augum að bjarga þeim frá gjaldþroti.

Vegakerfið er ónýtt og allur rekstur og framkvæmd sem snýr að umferðarmálum frá a-ö er eins og allir sjá, fyrir neðan allar hellur, líkt og verður að segjast um heilbrigðis-skóla- og reyndar öll hin kerfin hér í ruglinu og spillingunni.

Ég minnist þess tíma, þegar Íslendingar marseruðu rjóðir í kinnum undir blaktandi fánum og ættjarðarlögum á tyllidögum lýðveldisins og allir stoltir yfir að íslenska bláa vegabréfið okkar væri eitt það öflugasta og víðtækasta í heimi, en nú er það líka hrunið langt aftur fyrir öll samanburðar lönd okkar, eins og sjá má í meðfylgjandi upptalningu fréttarinnar.


mbl.is Íslenska vegabréfið tíunda öflugasta ferðaskilríki heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júlí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband