Já, ólíkt hafast þau að fyrrum samherjarnir.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir Jón Baldvin Gíslason haga sér eins og rándýr í samskiptum sínum við kynsystur hennar og fékk hann fjarlægðan af heiðurslistum Samfylkingar um aldur og ævi, en hvernig skyldi nú heiðurskonan sjálf hafa aflað sér lífsviðurværis eftir að hún yfirgaf sökkvandi þjóðarskútuna hérna um árið með allt niðrum sig, ef svo mætti mögulega að orði komast.

Já, um þau ríkulega launuðu störf hennar mætti mögulega viðhafa einmitt sömu orðin sem hún hafði um Jón Baldvin, þar sem hún lýsir honum sem geranda í ljótum og ójöfnum leik, en sjálf hefur hún lengst af starfað á vegum Bandaríkjahers og NATO í einmitt öðrum líklega enn ljótari og örugglega ójafnari leik í Írak og Afghanistan, sem sitt sýnis auðvitað hverjum um, en hefur þó uppskorið umtalsverðari frama, sem er harla ólíkt því sem segja má um látlaust niðurnídda og svívirta frelsishetju Eystrasalts ríkjana þriggja.


mbl.is Segir Jón Baldvin haga sér eins og rándýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. október 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband