ADHD lyf í sprautur fíkla?

Á Íslandi eru sagðir vera rúmlega 700 virkir sprautufíklar, þrátt fyrir að heróín sjáist hér sjaldan.

Þessir zombiar eða lifandi dauðu einstaklingar, ef svo mætti kalla þetta vesalings fólk fjármagnar neysluna með bótum, ránum og annarri glæpastarfsemi og allt auðvitað á kostnað þrautpíndra skatt-og trygginga greiðenda.

En hvað eru þessir fíklar að sprauta í sig og hverjir eru að auðgast á eymd þeirra?

Svarið við fyrri spurningunni kemur auðvitað fram í frétt mbl.is um hvaða lyf kosti Sjúkratryggingar Íslands mest og t.d. meira en öll hin rándýru krabbameins-og eyðni lyf, sem fjallað hefur verið mikið um.

Svarið við síðari spurningunni um hverjir séu að græða á þessari óhamingju allri er kaldhæðnislegra.

Auðvitað eru einhverju smyglað, þó vitað sé að arðvænlegra þyki að smygla kókaíni fyrir efnafólk og einhverjum læknum hefur því miður orðið hált á svellinu, en ég tel að það blasi við að einmitt stór hluti þeirra ADHD lyfja sem ætluð séu óstýrilátum börnum endi í raun og veru í sprautum fíklanna og sölu hagnaðurinn þar af leiðandi í vösum framfærenda barnanna.


mbl.is Mest útgjöld voru vegna ADHD-lyfja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. júlí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband