Sorglega lélegir fjölmiðlar.

Þessi meðfylgjandi frétt mbl.is, sem er beint þýdd úr yfirlýsingu frá ísraelska hernum er blátt áfram ógeðsleg og síðasta sort af blaðamennsku, enda enginn nafngreindur blm. skráður fyrir henni. Morgunblaðið hefur margt til síns ágætis, en verður líklega að vinna fyrir fjölmiðlastyrknum með því að þóknast einhliða áróðrinum sem viðgengst hér á Íslandi.

Óbeinn stuðningur Íslands við ísraelsku fjöldamorðingjana er einfaldlega ógeðslegur og óþolandi, líkt og þessi einhliða fréttaflutningur mbl.is ber svo greinilega með sér.

Þegar kemur að ein-stefnu áróðri, þá er þjóðarmorðið á palestínsku þjóðinni ekkert einsdæmi, því stríðið í Evrópu er jafn lýsandi dæmi um heilaþvottinn, því Íslendingum, reyndar líkt og öðrum vesturlandabúum er einungis boðinn upp á fréttir og viðhorf frá annari hliðinni og því miður virkar þessi einfalda aðferð svo vel að jafnvel fullorðnir þroskaðir einstaklingar trúa því að Pútín sé djöfullinn sjálfur og hann ráðgeri að leggja Evrópu undir sig hið fyrsta.

Þó ekki sé við hæfi að hlæja að heilaþvotti, þá er varla hægt annað en þegar kemur að óbeit Íslendinga og flestra Vestur-Evrópubúa á tilvonandi forseta Bandaríkjana, en hér mældist stuðningurinn við hann í könnunum í aðdraganda kosningana aðeins u.þ.b. 10% gegn 90% við Kamelu Harris og voru t.a.m. daglegar fréttir af Stormy Daníels eitt helsta fréttaefni íslenskra fjölmiðla árum saman.

Demókrat-feminiski Vók áróðurinn nær svo ótrúlega langt hér, að meira að segja ný kjörinn Forseti Íslands var ein fárra þjóðarleiðtoga sem sendu Donaldi Trump ekki árnaðaróskir eftir stórsigur hans í kosningunum, þó bæði Xi og Pútín óskuðu honum velfarnaðar.

Ég get bókstaflega ekki haldið áfram að lýsa vanþóknun minni nægilega á viðhorfum samlanda minna, en vil þó samt að lokum óska ykkur öllum farsældar á nýju ári.


mbl.is Felldi 20 palestínska vígamenn í stórri aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léttvæg fyrirheit og heitstrengingar Flokks fólksins.

Bróðir minn, blessaður drengurinn skrifaði mér orðrétt í gær: "Flokkur fólksins er að skíta í buxurnar með kosningaloforðin sín. Það er ekkert að marka neitt sem nokkur maður segir hér á Íslandi"

Þessi bitra yfirlýsing trúfasts kjósanda flokksins er líklega sérstaklega byggð á gjaldfelldum digurbarkalegum kosningaloforðum formannsins og ekki síður yfirlýsingum nýja Samgönguráðherrans, Eyjólfs Ármannssonar, sem segist nú þvert á fyrri staðhæfingar, ætla að söðla um og sé nú reiðubúinn að samþykkja bókun 35 á EES-samningnum sem hann sjálfur hefur þó ítrekað bent á að sé augljóst stjórnarskrárbrot og útvötnun á fullveldi Íslands.

Það hlýtur að blasa við öllum hvert stefnir í sjálfstæðis-og velferðarmálum þjóðarinnar, þegar að auðlinda þjófnaði á borð við orkuna okkar úr virkjununum sem áttu að verða hrein bú bót heimila landsins, þegar þær yrðu skuldlausar eins og er nú að raungerast, en hver er staðan nú þegar við fáum sífelt hækkandi orkureikninga og til hvaða ráða hyggjast garðyrkjubændur landsins sem nú eiga von á 30% verðhækkun grípa til?

Við Íslendingar erum því miður á hraðri leið í Evrópsk hnignandi gildi, sem eru hörmulega sorgleg endalok fallega fullveldisdraumsins.


mbl.is Hækkunin með öllu ólíðandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladagshugvekja í allri helgislepjunni.

Það er lýsandi hér fyrir stuðning ráðamanna við Ísraelsmenn, að í erlendum fjölmiðlum var sagt frá áframhaldandi loftárásum á Gaza á Aðfangadag þar sem 14 létu lífið og af þeim voru níu börn. Það fylgdi sömu ftétt að sömuleiðis væri komið í veg fyrir að hjálparsamtök gætu flutt vatn og mat til sveltandi fólksins.

Ekki var að finna stafkrók um þetta síðasta ódæði hér á mbl.is, heldur er ítarlegt hvatninga viðtal við Bemjamín Netanjahú, þar sem honum gefst færi á að flytja kærar þakkir til stuðningsmanna sinna hér og annarstaðar.

Það var líka hjákátlegt að lesa hér grein um Jesús á Aðfangadag eftir íslenskan prest sem starfar mikið við að flytja hópa Íslendinga á þessar slóðir sem lætur þessar aðfarir gyðinga á Gaza sem vind um eyru þjóta, því þeir eru jú fjarri því kristnir, andstætt því sem segja má þó um nokkurn hluta hinna 14.500 barna sem myrt hafa verið af stimamjúkum gestgjöfum hans í öryggi lúxushótela utan blóðbaðsins.

Nýkjörinn Forseti Íslands lét að því liggja í kosningabaráttunni, að hún myndi láta að sér kveða þegar að þessari þjóðarútrýmingu kæmi og gæti það að mínu mati hafa riðið þeim bagganun sem gerði útslagið um að friðelskandi þjóðin kaus hana.

Aðrar konur hér gegna stöðum um þessar mundir sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar, einungis með að þær lyftu litla fingri gegn þessum hörmungum og er ég þar helst að hugsa om Biskup Íslands, Forsætis-og Utanríkisráðherra Íslands auk annara valda kvenna hér á Íslandi, með Stjórnarskráryfirlýsinguna um eilíft hlutleysi, leiðtogafund Reagans og Gorbatjovs og auðvitað friðarsúlu Yoko Ono, kennda við John Lennon að leiftrandi leiðarljósi.

Því miður óttast ég á þessum jóladegi 2024, að allir þessir valdamiklu kvenskörungar láti nægja að njóta friðsælla jóla með fjölskyldum, börnum og ef til vill barnabörnum og leiði hugann frá öllum óþægilegum og niðurdrepandi fréttum sem helstu fjölmiðlar landsins hlífa þeim við af hreinni hugulsemi í tilefni heilagra jóla.


mbl.is Ísrael gerir hvað sem er til að verja ríki gyðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórn, en sami gamli grauturinn?

Nú á Þorláksmessu 2024 verður fyrsti ríkisstjórnarfundur þessarar nýju stjórnar sem margir binda miklar vonir við, en þegar í fyrstu viðtölum eftir að valkyrjurnar ákváðu vegferðina og síðar í hefðbundnum lykla skiptum í ráðuneytunum, þá byrjaði glansinn strax að fölna.

Það virðist þegar líta út fyrir að helstu kosningaloforð Flokks fólksins hafi einhvern veginn rýrnað eða gufað upp í stjórnarsáttmálanum og auðvitað er Evrópusambands draumurinn strax farinn að láta á sér kræla, þannig að draugar fortíðar og fyrri áform og verk Samfylkingar og nýja utanríkisráðherrans rifjast óneytanlega upp.

Það sorglegasta af öllu er þó sú staðreynd að þrátt fyrir fögur fyrirheit og kvenlega hlýju og yndisþokka, þá hyggjast þær halda áfram milljarðastuðningi við fáránlegan stríðsreksturinn í Úkraínu úr rýrum sjóðum okkar Íslendinga og að líta áfram framhjá hörmulegu þjóðarmorðinu í Palestínu, sem þær stöllur ætla greinilega ekki að láta spilla fyrir góðu skapi og sannri jóla-og nýárs stemningu.


mbl.is Fyrsti fundurinn á Þorláksmessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þrír leiðtogar - þrjú lykil ráðuneyti?

Það er mjög ásættanlegt að Kristrún verði forsætisráðherra, eins undarlegt það nú er að kalla konur herra, en það er önnur saga, en þá væri það líka jafn eðlilegt að leiðtogar Viðreisnar og Flokks fólksins skiptu með sér ráðuneytum fjármála-og utanríkismála - eða hvað?

Það er megn óþefur af því að formaður Viðreisnar, sem aldeilis á sér í besta falli skrautlega ferilskrá ætli að ota sínum tota væntanlega í krafti hótunar um samstarf við fyrri félaga, sem mætti kalla ódrengilegt með tilliti þess að einungis munar einum þingmanni á stærð flokkana og ef hægt er að tala um einhvern sigurvegara kosningana, þá er það óumdeilanlega ekki hún, heldur enginn önnur en dívan Inga Sæland.

Að því sögðu, þá vona ég að þessi Valkyrju stjórn á landinu hreina, með lýsandi friðarsúluna hafi kjark og þor til að hætta milljarða loftlagsgreiðslum, milljarða vopnakaupum og hugrekki til að slíta öllum tengslum tafarlaust við ógnarríkið Ísrael.

Ég þori þó varla í bjartsýninni allri að láta mig dreyma um þá hugljómun, að þjóðinni verði gefin kostur á að kjósa í síðbúinni bindandi þjóðaratkvæðisgreiðslu um aðild að NATO og EES, sem við vorum nefnilega aldrei spurð um.


mbl.is Kristrún Frostadóttir verður forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börnin á Gaza ekki sérlega áhugaverð í kosningabaráttuni.

Í meðfylgjandi frétt um hundruðir eða þúsundir saklausra barna í útrýmingabúðunum á Gaza sem misst hafa útlimi, auk þeirra sautján þúsunda barna sem drepin hafa verið nánast í beinni útsendingu alla daga, komu ekki til tals, frekar en nokkrar einustu aðgerðir til hjálpar eða fordæmingar á þjóðarmorðinu í neinum þeirra umræðuþátta sem ég sá eða heyrði í aðdraganda þessara kosninga.

Hvernig eru við Íslendingar eiginlega orðnir?


mbl.is Flest börn misst útlimi á Gasasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband