31.10.2024 | 15:31
Er Arnar Þór Jónsson síðasta hálmstrá okkar?
Ástand stjórnmála á Íslandi er í furðulegu sturlunarástandi um þessar mundir, reyndar líkt og óhætt er að fullyrða sömuleiðis um hinar Norðurlandaþjóðirnar, eins og greinilega má sjá á herskáum yfirlýsingum þeirra gagnvart Rússum á þingi Norðurlandaráðs þessa dagana.
Allir þessir ráðherrar virðst hafa gleymt öllu um miskunarlaust hernám Þjóðverja fyrir aðeins einum eða tveimur mannsöldrum síðan og aukin heldur hverjir það voru sem áttu mestan þátt í að vinna bug á nazistum og fórnuðu lang flestum mannslífum í þeirri baráttu.
Ef Arnar Þór sæti nú á Bessastöðum, þá væri öruggt að hann myndi ekki samþykkja fjárlög sem innihéldu tuga milljarða greiðslur í stríðsrekstur í Úkraínu, sem ég vona og treysti þó að Halla forseti okkar muni standa við stóru orðin og vísa þeirri kröfu í þjóðaratkvæði, því auðvitað ætti Bjarni sjálfur einfaldlega að greiða þá eitruðu blóðpeninga úr eigin sjóðum.
Það má líka alveg nefna að þrautpíndir íslenskir skattgreiðendur eru nú þegar með u.þ.b. 4000 Úkraínubúa á framfæri sínu, án þess að skilgreina hve hátt hlutfall þeirra er í raun og veru flóttamenn og hve margir eru einungis ótíndir liðhlaupar.
Ef næsta stjórn okkar verður með þau Bjarna Ben, Þórdísi Kolbrúnu og félagana Sigmund Davíð og Gunnar Braga Sveinsson innanborðs, þá eru framtíðarhorfur Íslands hreint ekki bjartar í áframhaldandi stríði okkar gegn rúsneska birninum hér á hjara veraldar - spái ég.
Alls ekki einstrengingslegur í hugsun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2024 | 11:39
Eru uppsagnir samninga verkalýðsins framundan?
Láglaunafólk á Íslandi samdi um mjög hófstilltar launabætur frá 1. apríl til fjögura ára, í því markmiði að ná niður verðbólgu og stýrivöxtum, sem myndu gagnast öllum, en þegar við undirritun samninga heyrðust efasemda raddir, sem vöruðu við því að aðrar stéttir myndu ekki fylgja hófsömu fordæmi þeirra launalægstu, eins og raungerist reyndar nú með þessum að því virðist stórfeldu launakröfum kennara.
Það blasir við að samningar verkafólks hljóta að standa á brauðfótum ef fram fer sem horfir.
Verkfall kennara hafið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2024 | 10:20
Er Gunnar Bragi aftur á leið í Utanríkisráðuneytið?
Nú virðast allir raftar á sjó dregnir, líkt og Dagur, Alma og Víðir eru lýsandi dæmi um, en nú keyrir úr hófi, þegar Gunnar Bragi Sveinson mætir allsgáður og endurnærður til leiks í annað sætið í Norðvesturkjördæmi, sem þýðir líkast til pólitíska upprisu hans og þá líkast til beint áframhald í störf núverandi utanríkisráðherra, á borð við þáttöku hennar í mótmælum á strætum Georgíu og auðvitað samviskusamlega fjármögnun úr sjóðum landsmanna í stríðsrekstur og vopnaskak gegn okkar fyrri vinum, Rússum.
Þess skal líka minnst að í aðdraganda stjórnarbyltingarinnar í Kænugarði 2014, sem Bandaríkin fjármögnuðu og skipulögðu ásamt auðvitað ESB, að einmitt leppar á borð við þáverandi utanríkisráðherra Íslands voru ráðnir til fyrirsætustarfa á götuvígjum málaliða stjórnarbyltingarinnar í beinni útsendingu CNN og annara Reuters miðla.
Ég vendi því kvæði mínu í kross og kýs líkast hreinlyndan Arnar Þór í stað einhvers ömurlegs Déjá Vu
Ingibjörg leiðir og Gunnar Bragi í öðru sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.10.2024 | 16:25
Spá mín um úrslit kosninga.
Eftirfarandi spá mín byggist helst á síðustu kosningaspám og grun mínum um að Samfylking eigi eftir að missa flugið enn frekar, helst vegna brotthvarfs Guðmundar Árna og ekki síður vegna nýrra skrautfjaðra, þ.e.a.s þeirra Dags, Ölmu og Víðis.
Hvað hrun Sjálfstæðisflokksins varðar, þá er það hneyksli hvernig flokkseigendur koma fram gagnvart sínu besta fólki, nú síðast auðmýkjandi meðferðin á Jóni Gunnarssyni og því munu Miðflokkur og Viðreisn njóta góðs af.
Þar fyrir utan hafa kjósendur horft upp á Bjarna formann ráðstafa óbeðinn, mörgum milljörðum sem vantar svo sárlega í gjörvallan rekstur þjóðarbúsins í drápstól á erlendri grundu.
Annar sigurvegari þessara kosninga verður örugglega Inga Sæland, sem þrátt fyrir einræðistilburði sína, hlýtur með eldmóði sínum að höfða til fjölmargra almennra borgara.
Von mín er reyndar að Miðflokkur, Samfylking og Flokkur fólksins geti komið sér saman um næstu stjórnarmyndun fyrir jól.
Miðflokkur............22 %
Samfylking............19
Sjálfstæðisflokkur..13
Flokkur fólksins.....13
Viðreisn.................12
Framsóknarflokkur...6
Píratar.................... 6
Sócíalistaflokkur...... 5
Vinstri græn............. 3
Lýðræðisflokkurinn....1
Ný könnun: Sjálfstæðisflokkur dalar og VG botnfrosið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2024 | 18:14
Kjörið tækifæri til að koma í veg fyrir landráð.
Nú stendur fyrir dyrum að starfsstjórn og Alþingi reyni að þræla í gegn fjárlögum fyrir komandi kosningar og leggja þau til staðfestingar fyrir nýkjörinn forseta, en þá blasir við kjörið tækifæri til að koma í veg fyrir augljós landráð, líkt og Hildur Þórðardóttir bendir skýrt og skilmerkilega á í aðsendum pistli sínum hér í Umræðu Morgunblaðiðsins í gær.
Í grein sinni bendir Hildur orðrétt á að vopnakaup Alþingis og þátttaka í stríði úti í heimi stangist á við Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, Varnarmálalög nr. 34/2008 og landráðakafla Almennu hegningarlaganna nr. 19/1940 og brjóti beinlínis gegn þeim. Ísland væri þar með orðið beinn þátttakandi í stríði og þar með hernaðarskotmark. Með þessum ráðstöfunum og frekari fyrirætlunum sínum hafa íslenskir ráðamenn því framið landráð.
Að mínu mati mætti þess utan draga Bjarna Benediktsson og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur til ábyrgðar fyrir þessi, að því virðist, augljósu brot þeirra, auk auðvitað óbeins stuðnings og aðgerðaleysis þeirra, fyrir hönd íslensku þjóðarinnar gagnvart þjóðarmorði gyðinga á Palestínuaröbum, sem hlýtur sömuleiðis að flokkast sem glæpsamlegur gjörningur.
Ný lopapeysa Bjarna smellpassar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2024 | 10:19
Akkilesarhæll íslenska landsliðsins.
Fáránleg útskýringin á fjarveru Alberts Guðmundssonar úr knattspyrnulandsliði þjóðarinnar eftir að afreksmaðurinn ungi hefur nú endanlega og fullkomnlega verið hvít þveginn af áburði þeim sem á hann var borinn, er sú að sögn norska þjálfarans, að Albert sé svo þrekaður eftir ákæruna að hann treysti sér ekki til að spila veigamikla leikina gegn Wales og Tyrklandi.
Þessar afsakanir, eða ósannindi þjálfarans ná auðvitað engri átt, því ekki ber á öðru en Albert spili betur og stjarna hans skíni bjartar um þessar mundir en nokkurn tíma áður með félagsliði sínu á Ítalíu.
Ætli raunveruleg ástæða fjarverunar sé ekki öllu heldur héraleg hræðsla KSÍ við reiði hinna bitru kvenna, líkt og sorgleg frammistaða liðsins á síðustu árum gæti borið vott um?
Landsleiknum frestað? Ekki í okkar höndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Í dag, þann níunda Október verður Friðarsúla Yoko Ono, til minningar um friðarsinnann John Lennon tendruð í átjánda sinn.
Síðan 2007 hafa aðstandendur og ástvinir Lennons gjarna hittst við stutta athöfn í Viðey í tilefni afmælis hans, en staðsetning ljósgeislans var auðvitað valin vegna jákvæðra og friðsamlegra viðhorfa okkar litla lýðveldis hér á jörðu.
Í ár minnast ættingjar afmælisins því miður á öðrum meira viðeigandi stað, þökk breyttum viðhorfum íslenskra stjórnvalda.
7.10.2024 | 15:10
Svandís opnar loks þverrifuna og tekur undir með varaformanni sínum.
Nú fyrst eftir heils árs látlausan hrylling í útrýmingarbúðunum á Gaza er það loks haft eftir einum ráðherra úr huglausri og spilltri ríkisstjórn Íslands, að hörmuleg útrýming tuga þúsunda saklausra barna, mæðra og feðra hafi reyndar átt sér þar stað.
Ráðherrann sem reyndar er í örvæntingarfullri atkvæðaleit veit líklega að meirihluti Íslendinga gerir sér ljósa grein fyrir augljósum ódæðum Ísraelsmanna og stuðningsþjóða þeirra, þannig að mögulega gæti hún þá uppskorið nýja kjósendur út á nýfengna samúð.
Annars er það skoðun mín að öll framkoma íslenskra stjórnvalda og þingmanna að báðum forsetum og biskupum meðtöldum af harmleiknum í Palestínu, sé ekkert annað en glæpsamlegt aðgerðaleysi.
Tekur undir með varaformanni: Þjóðarmorð á Gasa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2024 | 21:14
Trump tekur augsýnilega forystuna.
Þessi síðasta tilraun þessa svokallaða sérstaka saksóknara til að koma í veg fyrir framboð Donalds Trumps er hálf brosleg, þrátt fyrir að hún hafi dugað á forsíðu Morgunblaðsins og þrátt fyrir að ákæran verði ekki tekin til umfjölluna fyrr en eftir kosningarnar.
Í kjölfar tveggja morðtilrauna og ótal fjölbreyttra tilrauna til að stöðva rauðhausinn, þá verður það með degi hverjum greinilegra, að það hlutfall Bandaríkjamanna sem gera sér grein fyrir hörmulegu og sí versnandi ástandi undir stjórn woke-liðs þeirra Biden og Harris, fer ört stækkandi.
Aftur á móti, fyrir ótrúlegt 90% hlutfall heilaþveginna Íslendinga sem segjast aðhyllast Demókrata, þá gætu þeir mögulega hrist af sér galdurinn, ef þeir gæfu fyrrum demókratanum, Róbert F. Kennedy, bróðursyni JFK orðið, t.a.m. í lýsandi ræðu hans frá Walker-Michigan, 27. September 2024, sem finna má á youtube.com
Segir Trump ekki eiga að njóta friðhelgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2024 | 15:39
Ósmekklegt að kveikt verði á friðarsúlunni 9. Oktober
Fjarvera friðargæslusveita Sameinuðu þjóðana frá vetvangi þjóðarmorðsins á palestínsku þjóðinni sýnir svo ekki verður um villst, hver afstaða þeirrar spilltu stofnunar er.
Höfuðstöðvar S.Þ. eru einmitt staðsettar í landinu sem leggur til drápstækin og kemur í veg fyrir allar friðarumleitanir, þó þeir telji einföldu fólki um jarðir allar með góðum árangri, að þeir séu stöðugt að reyna að koma á friði í Palestínu og reyndar um heim allan.
Hér á Íslandi valdi Yoko Ono að reisa friðarsúlu til minningar um John Lennon, þó harla lítið fari skiljanlega fyrir umfjöllun um þá fallegu táknmynd þessa dagana.
Það væri nefnilega fremur hjákátlegt og fullkomlega á skjön við (grunsamlega) herskáa framgöngu íslenskra stjórnvalda í grímulausum stuðningi þeirra við stríðsrekstur NATO, nú síðast í Úkraínu og heigulslega þögn sömu ráðamanna þegar að miskunarlausu landráninu í Palestínu kemur og allt auðvitað að íslensku þjóðinni forspurðri.
Nú gefst heiðvirðum og friðsömum Íslendingum tækifæri að skrifa undir bænaskjal til nýkjörins forseta vors, þess efnis að stöðva öll vopnakaup og stríðsrekstur í okkar nafni án undangenginnar þjóðaratkvæðisgreiðslu og má nálgast þann undirskriftarlista hér: Austurvöllur.is
Sammála um hernaðaraðgerðir í Líbanon | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)