Bláeygir bjánar allra landa sameinist.

Það er sorglegt, hvað auðvelt er að draga sumt fólk á asnaeyrunum. Þessi frétt er lýsandi dæmi um þetta. Þessar heimasmíðuðu rakettur, sem eru nú ekki öflugri en svo að þær geti sprengt sjálfar sig í loft upp, heldur er safnað eftir notkun í statív til sýninga fyrir auðtrúa ráðamenn annara þjóða, sem teymdir eru um landnemabyggðirnar og sýnd hvað vondu palestínumennirnir geti verið illir gagnvart aumingja gyðingunum á nýju landnemasvæðunum.

Því er haldið fram að nazistar hafi brennt þinghúsið í Berlin, til að fá ástæðu til að koma frekari áformum sínum á framfæri og þeir finnast líka sem álíta að tvíburaturna "árásin" í New York hafi verið innanbúðarmál, eða aðeins sviðsett atburðarrás til að réttlæta átök í öðrum heimshluta. Er þá ekki borðliggjandi að ætla að þessar svokölluðu flugskeytaárásir(eins og t.a.m. þessi rakettuskot eru kölluð í frétt mbl.) eru aðeins átylla til frekari mannréttindabrota í fangabúðum Israelsmanna (eða væri jafnvel réttara að kalla þær útrýmingabúðir?) Það er ekki einusinni víst að höndin með eldspítuna hafi verið arabísk að uppruna

Að lokum vil ég minna á heimsókn kaþólskra páfa á hernumdu svæðin fyrir rúmu ári síðan. Þeir létu hafa eftir sér að getto Varsjár hafi verið öllu mannúðlegra.  Þessi frétt fór frekar illa fyrir brjóstið á Israelsmönnum og heyrðist að sjálfsögðu varla í ónefndum, sannkristnum fjölmiðlum.


mbl.is Ísraelar undirbúa hernað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei enda vita allir "sannkristnir" fjölmiðlar að ekki skal hlusta á fregnir um orð páfa í fleirtölu.

Gilbert (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 15:50

2 identicon

Ertu eitthvað illa gefinn Jónatan ?

Þetta eru flugskeyti sem hryðjuverkaarmur Hamasliða eru að skjóta yfir til Ísraels og drepa og limlesta ísraelska borgara, þú ættir kannski að skreppa þarna út og sjá litlu börnin og unglingana sem eru örkumla og limlest eftir þessar " rakettur "! Þetta eru ekki rakettur en rakettur líta td. út eins og þær sem þú skýtur upp á áramótunum !!

Til dæmis þá drepa Egyptar fleiri palestínumenn en ísraelar ...þeir skjóta á allt vikt við landamæri egyptalands.Sömuleiðis palestínumenn sem drepa hvorn annað innbyrðis...svo það er ekki allt sem sýnist.En næst skaltu afla þér upplýsinga áður en þú kemeur með villandi upplýsingar um palestínumenn sem þú heldur að seú svo friðelskandi...

solla (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 16:18

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

solla þú ert fífl.. algert fífl. 

Óskar Þorkelsson, 26.12.2008 kl. 20:16

4 identicon

Solla, ég held að það sé erfitt að vera friðelskandi til lengdar þegar skotið er í sífellu á mann stórskotum meðan maður sjálfur hefur lítið annað en steina.

Og það er rétt hjá þér, það er ekki allt sem sýnist. Ísraelar eru auðvitað hinu mestu englar, er það ekki? Ekki halda þeir mikið í boðskap sinnar eigin trúar. Vittu hvað? Þeir telja sig vera hina útvöldu, einu sönnu börn Guðs og að þeir einir munu lifa af hið svokallaða 'Armageddon'. Þú fyrirgefur ef mér finnst það vera einum of stórt litið á sig.

Ég myndi ekkert telja það óeðlilegt að það séu aðilar sem hafa engan áhuga á friði, á báðum vígstöðvum - aðilar sem víla ekki fyrir sér að koma sökinni á hinn aðilann til að byrja vargöld. Þessi aðferð með að "ráðast á sjálfan sig" er vel þekkt í sögubókum og finnst mér ótrúlegt að fólk trúi ekki að sú aðferð sé enn við lýði. Engar kyngimagnaðar dularsögur heldur staðfastur sannleikur.

Það eru til miður falleg vídeó af þeim tíma sem Ísraelsríki var stofnað þar sem ástæðurnar eru fegraðar og fyrrum íbúar fluttir burt (Palestínumenn). Fluttir burt og sagðir vera ánægðir með sitt hlutskipti. Einmitt.

Spekingur (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 20:26

5 identicon

Það er virðingarvert Óskar hvað þú virðist vera öfgalaus.

Eru hinir friðelskandi Palestínumenn þá alltaf að skjóta upp flugeldum í gleði sinni í væntumþykju og hippastemningu?  Svo koma hinir hræðilegu bjúgnefjuðu síonistar og nota þessar púðurkellingar sem átyllu fyrir grimmdarlosta sinn.

Æ,æ.

marco (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 20:37

6 identicon

Thessi "meinlausu" flugskeyti köllud Qassam-raketur sálgudu tveimur palestínskum börnum í dag thegar thaer misstu marks. Thaer voru ad sjalfsögdu aetladar ísraelískum börnum, Jónatan. Thaer gátu borid 5-10 kíló sprengiefni og svona meinlausar voru thaer,Jónatan. Shalom!

S.H. (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 23:02

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ertu að copy paste svörin þín marco ? og öllum beint að mér :)

Óskar Þorkelsson, 26.12.2008 kl. 23:29

8 identicon

Nei, Óskar og slakaðu aðeins á paranojunni!!

Á öðru bloggi hrósaði ég þér fyrir rökfimi en hér fyrir öfgaleysi.  Lærðu að taka hrósi maður!

marco (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 00:08

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

enn og aftur  GEYSP marco

Óskar Þorkelsson, 27.12.2008 kl. 00:53

10 identicon

Góða nótt mannkostamaður.  Dreymi þig fallega.

marco (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 01:56

11 Smámynd: Óskar Arnórsson

Hvað er þetta rugl eiginlega? Ræður ekki sá sterki? Sá sem betur er þjálfaður til manndrápa og hefur betri vopn! Svo eru Ísraelar með þinglýst afsal fyrir að vera þarna, sem er einhver blaðsíða rifin úr Biblíunni!

Ég ætti nú að fletta þessari hundleiðinlegu Biblíu og gá hvort ekki standi að ég eigi ekki eitthvað land einhversstaðar...

Ísraelsmenn eru "heilagir" krossfarar nútímans og eru bara að fylgja fyrirmælum Guðs, og drepa heiðingja.

Svo hafa þeir gaman af stríðum...svo hætta þeir þessu þegar þeir eru orðnir leiðir á þessum átökum. Það verður fróðlegt að sjá hvað Obama ætlar að styðja þessa Ísraelísku morðsveitir með miklum peningum...

Eitthvað kostar að halda uppi þessu "heilaga" pakki uppi...og Obama vill spara..

Óskar Arnórsson, 27.12.2008 kl. 06:57

12 identicon

Spekingur:

 Hefur thú nokkud hugleitt hve margir gydingar voru neyddir til ad yfirgefa heimili sín og eigur í arablöndunum á árunum 1948-50? Hverjir aetli hafi verid thar ad  verki?

850.000 gydingar ,fleiri en palestínsku flóttamennirnir, voru neyddir í burtu frá nágrannaríkjum Ísraels og eignir theirra eru taldar vera 300miljarda dollara virdi og landeignir cirka 100.000 ferkílometrar voru í eigu theirra (naestum fimm sinnum staerd Ísraelsríkis) Ísrelar tóku vid thessum flóttamönnum theim sem thess óskudu. Gaeti verid til eftirbreytni fyrir arabaríkin sem neita palestínsku flóttamönnunum um ríkisborgararétt og neyda thá til ad búa vid ömurleg skilyrdi í flóttamannabúdum eftir meira en 60 ár!

Hugleiddu thetta eitt augnablik, herra SPEKINGUR! 

S.H. (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 10:20

13 Smámynd: Óskar Þorkelsson

voru það ekki hefndaraðgerðir S.H.. ?  gjalda líku líkt eins og stendur í biblíunni.. 

annars væri gaman að sjá hver þú ert S.H.. kemur hér fram undir dulnefni og óskráður og rífur kjaft..  

Óskar Þorkelsson, 27.12.2008 kl. 10:22

14 identicon

Það er með ólíkindum að Óskar skuli aldrei komast í rökþrot. 

Samt leyfi ég mér að benda á það að fréttin sem upprunalega setur þessa snerru af stað fjallar einmitt um hefndaraðgerðir.  Þarna gætu verið smá brestir í hinni fimlegu vörn Óskars.

marco (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 10:51

15 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hmm.. hvað eru hinir friðelskandi israelar að gera í dag ?

Óskar Þorkelsson, 27.12.2008 kl. 10:54

16 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þarf að rífast um þetta? Vandamálið er ekki þess virði. Trúarruglið er á báða bóga gver hver með sína Guðs fílósófíu og það er andskotan ekki til það dóp sem gerir fólk geðveikara enn þessir "trúuðu".

Reyndar nota Palestínumenn hash fyrir börnin í barnasprengjuskólum sínum þegar einhver "útvalinn" fær að spergja sig í loft upp. Börnin verða "meira trúuð" sem fær þetta eiturlyf. Áhrif þessa er svoleiðis að það verður ekkert mál að sprengja sig í loftið...

Þetta er ekki svo stór grúppa sem er að framleiða hefndaraðgerir Ísraelsmanna. Að þeir geti ekki stútað þeim sjálfir, friðelskandi Palestínumenn. 

Ég myndi bomba sprengjuskólanna á þakið, með hljóðsprengjum aðeins til að hræða þá. Menn skíta á sig af að heyra svona sprengingu, enn hún skaðar voða lítið.

Og ef þeir verða ekki tómir innan 2ja, klukkutíma, þarf að setja þessa barnasprengjuskóla, kílómeter ofan í jörðina, alla saman. Íraelsmenn vita um hvern einasta skóla. Enda með tækni að fylgjast með það gerist. Pentgon fylgist með þessu í gegnum gerfitungl.

Asía á ekki í neinum stríðum, enn þeir eru harðir á landamærum. Tæland sem er eitt mest demókratíska landið, oppnaði landamæri sín til Kambódíu og Laos, enn ekki Burma.

Tælenskur hermaður eða lögreglumaður sem handtekur flóttamann frá Burma leyfir honum að vera, lætur hann hafa nafnspjald, bendir honum hvar hann geti fengið vinnu og hætt að vera hræddur við þá. 

Þeir vinna eins og félagsmálaráðgjafar af því að þeim er kennt það í lögregluskóla. Og það er farið eftir þessu. Þeir meiga þó ekki hafa framið nein afbrot.

Samt er búið að flæma 2 forsætiðráðherra í burtu, einn sem stal billjónum og hinn sem var ruglaður. Taksin fyrst og svo hin, kokkurinn því hann var með matreiðsluþátt einu sinnu í viku og talaði til þjóðarinnar og herssins.

Hér ræður lýðurinn og ekki yfirvöld í stærstu málunum. Kallast lýðræði, sem Ísland, Ísrael og Palestína kunna ekki að stafa. Það er ekki virkt á Íslandi.

Ísraelsmenn eru sekir í því að hafa eignað sér land á mjög vafasömum grundvelli. Palestínumenn eru félagslega vangefnir, enn Ísraelar ekki. Vopnuð innbyrðis átök eru í gangi í Palestínu, enn ekki Ísrael.

Áður enn Ísrael er ásökuð meira myndi ég vilja spyrja, hvar eiga Ísrelar að vera? Einhverjar tillögur?

Tek það fram að ég er alveg ónæmur fyrir því hver er að drepa hvern út í heimi. Ég læt ekki svona mál sem mig varðar engu. Þetta er svona "Never Ending Story" eins og þegar IRA var í fjölmiðlum á hverjum einasta degi.

Sérílagi þegar á í hlut fólk sem stjórnast af trúarbrögðum. Meira að seigja á Íslandi getur þjóðkirkjan skrúfað út 6 milljarða á  ári og selt Ríkinu eina og eina jörð sem þeir aldrei hafa átt, eða stálu einhverntíma. Og 5 milljónir fengu samanlagt allar hjálparstofnanir fyrir fátæka á Íslandi. Átti að vera öfugt að sjálfsögðu.

Ísland í hnotskurn.

Hverjir eru asnarnir, Ísland, Ísrael eða Palestína? Ég vil ekki búa í neinu af þessum löndum vegna kúltúrsins og hvernig fólk hagar sér. Íslendingar eru ekki að skjóta hvern annann, enn þeir gera bara eitthvað annað í staðinn sem býr til sama ömurleikan...  

Enda bý ég ekki í neinum af þessum löndum og ætla aldrei að gera...

Óskar Arnórsson, 27.12.2008 kl. 12:11

17 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hvar eiga Ísrelar að vera? Einhverjar tillögur?

Utah ? 

Óskar Þorkelsson, 27.12.2008 kl. 12:36

18 identicon

Sammála Óskari!  (Þori ekki öðru.  Annars fer hann að geispa.)

marco (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 15:25

19 identicon

Ó ,ó, ó Óskar!

 Ad segja sannleikann kallar thú ad rífa kjaft. Mér fannst ég bara vera hógvaer.
Og ég á thad vid mbl.is og ekki thig hvort ég skrifa undir dulnefni medan thad er fyllilega leyfilegt og ekki bannad.

S.H. (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 23:28

20 Smámynd: Óskar Þorkelsson

enda ert þú og marco í sama hópi.. hópi hugleysingja.. rakkar sem rífa kjaft úr fjarlægð ;)

Óskar Þorkelsson, 29.12.2008 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband