Hvernig verður Donald Trump stöðvaður?

Eins og allt bendir til, þá verður Donald Trump kjörinn sem næsti forseti Bandaríkjana árið 2024 og það líklega með Ron DeSantis sér við hlið sem varaforseta, þrátt fyrir máttlausar ófræginga herferðir alls góða hyskisins.

Þetta vita bandarískir demókratar mæta vel og afleiðingar þess og ekki bara fyrir þá, heldur fyrir allt glóbala demókrata hyskið, sem t.a.m. fjölmennir á þingi, stjórnsýslu og í æðstu embættum hér á hjara veraldar eins og við blasir.

Ég óttast að öllu verði til kostað að koma Trump fyrir kattarnef áður en hann nær að taka völdin í sínar hendur, því endurræsing hans á hefðbundnum gildum mun ná til bandamanna og auðmjúkra leppa Bandaríkjanna um víða veröld og hafa víðtæk áhrif, líkt og hann heldur fram, þegar hann segist t.d. tafarlaust muni stöðva stríðið í Úkraínu.

Því miður eru lífslíkur hans jafnvel enn lakari en þær sem Kennedy átti í stjórnarbyltingunni 22. nóvember 1963, eftir að hann hafði kæft Svínaflóa árásina og boðaði niðurskurð í Víetnam.


mbl.is Sakfelling hindrar ekki Trump í að gefa kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Góður punktur hjá þér Jónatan, það er búið að reyna allt til að stöðva hann, og er bara eftir að reyna að myrða hann. Held reyndar að það hafi verið reynt eða pælt í án þess að við vitum af því. Allir Bandaríkjaforsetar eru skotmörk afstækismanna.

Birgir Loftsson, 2.4.2023 kl. 13:10

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Birgir á þessum fallega sunnudegi.

Þakka þér innlitið, sem ber með sér að í þessum málum erum við á líkri, eða sömu skoðun.

Jónatan Karlsson, 2.4.2023 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband