Spaugilegt dæmi um spillta stjórnsýslu.

Þetta síðasta dæmi um gengdarlausa hagsmunagæslu valdhafa í þágu umbjóðenda sinna er auðvitað smámunir í samanburði við öll þau rán og myrkraverk sem landsmenn eru trakteraðir á alla daga.

Þessar hundrað milljónir eru auðvitað hreinir smáaurar í samanburði við góssið sem þetta hyski, eða landráðapakk, eins og ég myndi kalla það, vinnur leynt og ljóst að sölsa undir sig alla daga, en gjörningurinn undirstrikar og sannar illan ásetninginn.
Það er nefnilega ein önnur einkarekin útvarpsstöð hér á skerinu, sem líkja má við flein í holdi stjórnvalda, því þar er orðið frjálst og öll viðhorf og sjónarmið viðruð þar óheft í beinni útsendingu.

Sú litla stöð sem um ræðir er þrátt fyrir smæðina örugglega ein vinsælasta útvarpsstöð þjóðarinnar, þó svo hún hljóti ekki eina krónu í stuðning af sýndar-fjölmiðlastyrk ráðherrans, eða þessari síðustu viðbót stjórnvalda og er því eingöngu fjármögnuð af frjálsum framlögum hlustenda stöðvarinnar, þó svo þeir sömu hlustendur séu að auki þvingaðir til að greiða tugþúsunda nefskatt til ríkisfjölmiðilsins.

Spaugilegt er þó ætíð að hlustendur Útvarps Sögu skiptast í tvo hópa, þá sem segjast hlusta mikið á hana og svo þá sem segjast alls ekki þola hana - hvernig sem þeir nú komast að því?


mbl.is Styrkjum til fjölmiðla komið í góðan farveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Kjarnyrtur pistill Jónatan.

Magnús Sigurðsson, 17.12.2022 kl. 12:02

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Góðan daginn Jónatan. Útvarp saga á sér merka sögu og það er greinilegt að "svelta" á Útvarp sögu í þrot, en útvarpstöðin er eina stöðin með einhverja útbreiðslu sem fékk ekki styrk.  Ætli ég skrifi ekki grein um stöðuna!

Birgir Loftsson, 18.12.2022 kl. 19:59

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

En merkilegt er það, að þarna finnst ráðamönnum,

eins og fleirum, ekkert mál að mæta í viðtöl og

finnast það bara sjálfsagt.

Tvískinnungurinn verður varla meiri.

Sigurður Kristján Hjaltested, 18.12.2022 kl. 21:18

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Allir muna eftir N1-hneyksli núverandi fjármálaráðherra. Nú er það N4-hneykslið. Hvað varð um N2 og N3? Voru þau mál þögguð niður, af því að enginn var frjálsi fjölmiðillinn að fjalla um þau?cool

PS Það fær mig til að hugsa, ef fjölmiðill er ríkisstyrktur, er hann frjáls? Mun viðkomandi fjölmiðill gagnrýna ríkisstjórnina, höndina sem fæðir hann?

Theódór Norðkvist, 19.12.2022 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband