Jón og séra Jón

Þessi vinarlegi rabbíni frá New York sem er í helgarviðtali Morgunblaðsins að þessu sinni, aðalega líklega vegna útgáfu íslenskrar þýðingar á enn einni frásögninni af svonefndum útrýmingarbúðum nazista á árum síðari heimstyrjldarinnar og virðist tilefni viðtalsins helst vera að þessi ungi maður ritar formála að bókinni.

Avraham Feldman segir bókina vera mjög fræga og lýsa á sannfærandi og hátt aðstæðum og hryllingnum sem aumingja fangarnir máttu lifa við í Auschwitz og bætir við að hann hafi lesið bókina fyrst fyrir mörgum árum, en hafi síðan lesið hana aftur til geta haft efnið ferskt í minninu við ritun formálans.

Feldman heldur áfram og segir að í bókinni sé helförinni og lífinu í búðunum lýst frá fyrstu hendi höfundar, en ekki einungis sem tölfræði yfir þær sex milljónir gyðinga sem þar týndu lífinu, en lokaorð rabbínans í viðtalinu eru þessi:

„Við erum öll sköpuð jöfn og af sama guðinum. Eng­inn er öðrum æðri, all­ir hafa sama rétt í þess­um heimi. Hinn frægi rabbíni Maimoni­des, sem var uppi á tólftu öld, sagði að hver og einn væri heill heim­ur, ekki bara ein­stak­ling­ur, og þeir sem bjarga ann­arri mann­eskju bjarga um leið öll­um heim­in­um og niðjum þeirra í framtíðinni. Þetta er góð speki að til­einka sér og fara eft­ir.“

Ég vil nú eins og púkinn á fjósbitanum bæta við hugljúft viðtalið, að ég held að það viti flestir sæmilega upplýstir jarðarbúar að meðferð gyðinga á Palestínumönnum nú til dags, er ekki beinlínis í samræmi við hugmyndir Herra Feldmans um kærleika og mannréttindi og talandi um það, þá fékkst á síðasta ári með harmkvælum gefin út í íslenskri þýðingu bók kanadísks sagnfræðings um þetta sama viðkvæma málefni, líklega með skírskotun til ritfrelsislaga, en varð að því ég best veit strax svartlistuð og ófáanleg í öllu jólabókaflóðinu og jafnvel á ný-afstöðnum bókamarkaði á Laugardalsvelli var hún hvergi sjáanleg.


mbl.is Illskan ímyndunaraflinu framandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband