Áfram Kanye West

Það verður að viðurkennast að COVID-19 vírusinn ógnar endurkjöri Donalds Trump í haust, en nú virðist hjálpin koma úr óvæntri átt, því tilkynning um væntanlegt framboð rapparans Kanye West á örugglega eftir að hljóta stuðning hópa þeirra sem aðhyllast vandalisma, boð og bönn.

Þetta hlýtur að vera áfall fyrir aumingja karlinn, hinn veiklulega Joseph Biden, sem með þögn sinni ætlaði að höfða til þessara sömu öfgafullra vinstri afla, sem auðvitað eru ekkert annað en fasistar í ljósi eyðilegginga söguminja og enn fremur rasistar, því það fer ekki á milli mála að þetta litríka fólk hatar ekkert meira en einmitt hvítt fólk og þá allra helst hvíta miðaldra karla.

Það hlægir mig og kitlar í mér kvikindið, tilhugsunin um eymdarlegt kjökur og útópískar útskýringar hinna vinstri sinnuðu feminista H.Í. og RÚV í nóvember, eftir glæsilegt og fyrirsjáanlegt endurkjör núverandi forseta Bandaríkjanna.


mbl.is Vill stofna garð um þjóðhetjur Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband