Opinber aftaka?

Það eru einkennilegir tímar á Íslandi nú í lok árs, líkt og opinber aftakan á nafngreindum lektor við háskólan ásamt birtingu mynda af honum og heimili hans ber með sér áður en hann hefur hlotið dóm og jafnvel áður en mál hans hafi verið rannsakað að nokkru ráði eftir því sem best verður séð.

Það fer ekki á milli mála að óþolandi spilling, neysla og glæpir tröllríða hér röftum, en eru þó engin afsökun fyrir hverskonar meinfýsni.

Mannskepnan er söm við sig frá því sem áður var þegar einhver helsta skemmtun og ánægja lýðsins voru einmitt opinberar refsingar og aftökur og skorti þá ekki hvatningarópin frekar en nú.


mbl.is Tekur sér frest til hádegis á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband