Morðingjar og föðurlandssvikarar.

Fyrirsögn þessara Aðventu hugleiðinga höfðar blákalt til þeirra mála sem til stendur að lögfesta á Alþingi Íslendinga á næstu vikum, í hrópandi andstöðu við þjóðarviljann.

Nú snýst öll umræðan um sóðalegt fyllirís röfl nokkura þingmanna og heilaga fordæmingu á orðlagi þeirra sem fyrir tilviljun náðist á upptöku, en minna rætt um valfrjálsar fóstureyðingar fram á miðja meðgöngu, eða fósturmorð eins og ég myndi kalla drápið.

Tvö önnur mál eru á döfinni hjá ríkisstjórninni, en þau eru auðvitað samþykkt þriðja orkupakkans, sem engin erindrekana hefur enn getað bent á hvernig mætti gagnast Íslendingum og í þriðja stað þá ætla þessir sömu þrjótar að halda á fund til Marrakó og láta okkur þar samþykkja ráðstöfunarrétt SÞ yfir fullveldi okkar og landamærum, gagnvart aðstreymi hælisleytenda.

Það liggur í augum uppi að þessi áform öll beinast gegn hagsmunum þjóðarinnar og þar sem ég er óvenju illa innrættur, þá ímynda ég mér líka að hundraða milljóna mútur komi þar við sögu.

P.S.
Að lokum sting ég upp á að við lok fundarhalda á Alþingi og enn frekar í Ráðhúsi Reykjavíkur að kjörnum fulltrúum okkar hverjum og einum sé fyrirvaralaust gert skylt að skila þvagprufum til rannsóknar, því jafnvel einfaldasti lögregluþjónn ætti að vita að hefðbundnir fíklar og dópistar hafa alls ekki ráð á öllu því kókaíni sem mælist í frárennsli borgarinnar á degi hverjum.


mbl.is Hvernig munu spilin leggjast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband