Útvarpsstjóra kapall

Það verður að teljast nokkuð öruggt að næsti útvarpsstjóri hefur þegar verið valinn, en þetta laumuspil og baktjaldamakk er einungis enn eitt dæmið um óþolandi spillinguna sem viðgengst í þessu klíkubæli okkar, sem með degi hverjum verður æ greinilegra.

Það er að sjálfsögðu á hreinu að næsti stjórinn verður kona og ekki einungis vegna þess að strákarnir eru hættir að geta lesið eða dregið til stafs, heldur vegna þess að enginn þorir lengur að láta sér koma annað til hugar.

Ónafngreindur maður úti í bæ giskaði á að fornafnið væri Svanhildur, en hvort eftirnafnið væri Konráðsdóttir eða Hólm fylgdi því miður ekki sögunni.


mbl.is Umsækjendurnir mega njóta nafnleyndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. desember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband