Illþýðið verður að taka afleiðingum gjörða sinna.

Þessa stúlku, líkt og aðrar konur sem snúist hafa gegn föðurlandi sínu og gildum þess á að meðhöndla á sama hátt og vígamennina sem þær gengu á hönd og þjónustuðu.

Þessu fólki á alls ekki að leyfa að snúa aftur til Vesturlanda, nema til viðvarandi dvalar í öryggisgæslu, því þetta fólk er allt tifandi tímasprengjur og varla er hægt að ætlast til að friðsælir borgarar búi við öryggisleysi og þungvopnaðra löggæslu til frambúðar.

Það er kannski tímanna tákn að taka brosandi opnum örmum á móti skilríkja lausu illþýði allra landa, en rétt eins og í okkar eigin skólakerfi þar sem nú er predikað: Skóli án aðgreiningar, þar er einmitt hliðstæðan keimlík, því einungis einn eða tveir gikkir í bekkjardeild, geta hreinlega eyðilagt heildarárangur bekkjarins - rétt eins og PISA niðurstöður sanna svo áþreifanlega.


mbl.is Stakk af til að giftast vígamanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. júlí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband