Hneyksli ef Icelandair kaupir eignalaust WOW air dýrum dómum.

Það virðist helst uppi á borðum þessa dagana að ríkis lágfargjalda flugfélagið Icelandair kaupi annað eignalaust og líklega yfirskuldsett félag í sama geira og greiði rúm fimm prósent af tuga eða hundraða milljarða eignum sínum fyrir það.

Þessi ótrúlegi gjafa gjörningur er nú á borði Samkeppnisstofnunar, sem eins og allir vita er álíka rotin og gagnslaus stofnun og t.a.m. Ríkisendurskoðun, Fjármálaeftirlitið og auðvitað ríkisstjórnin öll að viðbættum öðrum liðleskjunum við Austurvöll.

Þessi viðskipti sem örugglega eru í boði lífeyrissjóða landsmanna gætu í versta falli leitt til næsta hruns og endaloka íslensks eignarhalds á millilandaflugi.

Að lokum þá ráðlegg ég fremur Icelandair í daglegum kröggum og basli þeirra, að fækka um tvo til þrjá í fríðum flokki flugþjóna um borð, því þjónustan frá því að Flugleiðir voru virðulegt áætlunarflugfélag er nú nánast engin og hálf vandræðalegt að horfa á einar fimm fullfrískar konur þiggja laun fyrir það starf sem tvær duglegar flugfreyjur færu létt með.


mbl.is Fullyrt að vélum WOW air fækki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar sem ekki er húsrúm, þar er því miður ekki hjartarúm.

Þessar reglulegu vælufréttir mbl og fleirri fjölmiðla af þessum svokölluðu flóttamönnum, sem eru auðvitað ekki flóttamenn, heldur hælisleitendur, því þeir eru oftast ekki að flýja stríðsátök.

Einn úr þessari frétt er sautján ára frá Súdan og segist vilja fara hvert sem er annað en til Lýbíu, en einmitt þaðan var hann samt að koma, þegar hann var fiskaður upp úr sjónum og bjargað, skrýtið?

Önnur grátklökk frásögn nýlega af mbl.is, af þeirri tegund sem býður ekki upp á athugasemdir, fjallaði um 18 ára stúlku frá Gambíu, sem býr nú á Sikiley, væntanlega í óþökk heimamanna, en ástæður þess að við og aðrir Evrópubúar eigum að vorkenna og ala önn fyrir henni eru víst þær að móðir hennar hafði fundið henni eins og tíðkast á þessum slóðum ráðahag sem henni líkaði hreint ekki við og hvert skyldi stúlkan þá hafa hlaupist á brott? Auðvitað til Lýbíu.

Ástandið hér, líkt og annarstaðar í Evrópu býður hreint ekki upp á neina aðstöðu fyrir framandi óskylda, fullfríska þiggjendur á velferðakerfi okkar sem nær vart að sinna eigin þegnum, sem hafa þó unnið fyrir því alla ævi, og sérstaklega ekki þar sem flestir, líkt og dæmin tvö sem ég til tek, koma í raun og veru frá frjósömustu og ríkustu heimsálfu jarðarinnar.


mbl.is Neita að fara í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er skyndileg frestun umsóknar aðeins sönnun um illan ásetning?

Óvænt ákvörðun erindreka þriðja orkupakkans að fresta umsókninni um sinn, er í raun og veru einungis staðfesting á illum ásetningi þeirra, því allt stefndi í að frumvarpinu yrði hafnað.

Hávær mótmæli fjölmargra þjóðernissinna er vöruðu við hörmulegum afleiðingum þess, ef þessi augljósi landráða samningur yrði staðfestur og ekki síður þær fullyrðingar er heyrðust æ oftar, að þeir ráðamenn sem ætluðu virkilega að samþykkja þetta ráðabrugg á einungis þeim forsendum að forðast að hleypa úreltum EES samning í uppnám, að þeir væru drifnir af annarlegum hvötum, eða með öðrum orðum á ónefndum og líklega erlendum spena.

Það er nauðsynlegt að allir föðurlandsvinir haldi vöku sinni, því þó þessari atlögu hafi verið hrint, þá er stríðið um auðlindir Íslands aðeins rétt að byrja og næsta árás í vor eð fyrr, eflaust í burðarliðnum.


mbl.is Útilokar ekki frekari frestun orkupakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endanleg lausn?

Þar viðvarandi ógnarástand sem ríkir í Ísrael og virðist engan endi ætla að hafa, hlýtur að kalla á úrlausn og væri þá ekki skynsamlegt að athugað væri að flytja ólátabelginn í annan skóla, eða með öðrum orðum finna Ísrael annan samastað, því auðvitað er ekki hægt að flytja alla arabana, nágrana gyðingana á brott, frekar en ekki er hægt að flytja skólann burt frá ólátabelgnum.

Mér þætti auðvitað lang eðlilegast að Bandaríkin myndu einfaldlega breyta heiti Long island í Israel ef gyðingar óskuðu þess, en eins og flestir vita, þá býr ógryni gyðinga í New York og hvað mest í Brooklyn og því hægt um heimatökin.

Aðrir staðir í víðáttum Bandaríkjanna kæmu auðvitað líka til greina og væri kjörlendi fyrir þessa þjóð sem á það sameiginlegt með Bandaríkjamönnum, að þeir álíta sig einhverskonar guðs útvöldu og öðrum fremri.

Ýmis landsvæði á jörðinni kæmu eflaust til greina sem ríki gyðingana, þó önnur á borð við þau i okkar eigin heimsálfu kæri sig ekki um of náinn samskipti, eins og hrikaleg sagan ber vitni um.

Ef ekki er hægt að leysa vandamálið varanlega, þá verður auðvitað að framfylgja næst besta kostinum, en hann er auðvitað sá sem nær allar upplýstar þjóðir mæla með, en það er auðvitað tveggja ríkja lausnin, sem felur í sér viðurkennd landamæri á milli Ísrael og sjálfstæðar Palestínu, sem hefði auðvitað sínar hafnir, flugvelli og annað sem fullvalda ríki eiga.

Auðvitað færi skiptingin ríkjana fram undir handleiðslu friðargæsluliðs SÞ, sem reyndar er óskiljanlegt að sé ekki nú þegar í þessu sorglega ófriðarbáli.


mbl.is Segir af sér vegna vopnahlés
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringavitleysan

Þrátt fyrir að forstjórinn barmi sér nú yfir að andstaðan við vitleysuna við Hringbraut hafi verið óþarflega heiftúðug, þá er og verður þessi staðsetning aldrei annað en í besta falli vanhugsuð og heimskuleg, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir mætra manna.

Þessi framkvæmd er reyndar ágætt dæmi um sleifarlag það og spillingu er virðist í hávegum höfð hér á skerinu eins og við blasir hvívetna. Það væri reyndar auðveldara að telja upp framkvæmdir þar sem ráðvendni og fyrirhyggja væru í fyrirrúmi höfð og minnist ég því til sönnunar í fljótu bragði ekki einnar einustu opinberar framkvæmdar síðustu áratugi, því Hvalfjarðargöngin voru auðvitað einkaframkvæmd.
mbl.is Andstaðan verið „óþarflega heiftúðug“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnir í þjóðargjaldþrot ?

Nú fjalla ráðherrar og aðrir opinskátt um fyrirsjáanlegt gjaldþrot WOW, þó nýlega hafi verið látið í veðri vaka að aðeins um tímabundna erfiðleika hafi verið að ræða.

Það liggur í augum uppi að ástæður hlutabréfahækkunar Icelandair stafa einungis af stórfelldum kaupum lífeyrissjóða okkar landsmanna, því harla ólíklegt verður að teljast að erlendir aðilar veðji á samsteypu þessara tveggja félaga í innbyrðis samkeppni við hvort annað.

Líkt og sagt er að rotturnar yfirgefi feig skip, þá er líklega rétt að Engeyingar og aðrir innanbúðar menn selji nú á góðu gengi í þessari dauðvona samsteypu skuldsetts eignarlaus gjaldþrota risa og illa rekins ríkis flugfélags, sem svo eftirminnilega mátti sjá undir iljarnar á gamla forstjóranum.

Stóra spurningin hlýtur því að vera hvort nokkrum gráðugum auðmönnum með hjálp spilltra embættis-og stjórnmálamanna tekst loks að reka gjaldþrota smáríkið í faðm Evrópusambandsins?


mbl.is WOW Air átti frumkvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband