Áleytinni spurningu svarað?

Staðreyndir benda til að neysla kókaíns fari fram í stórum stíl hér í Reykjavík og er ég þar að vitna til doktorsverkefnis efnafræðings sem byggðist á nákvæmum mælingum á frárennsli borgarinnar og í öðru lagi þá fer það ekki fram hjá hverjum stautfærum einstaklingi, að smygl á þessu yfirstéttar dópi fer hér fram í stórum stíl, því eins og liggur í augum uppi, þá er aðeins lítill hluti af efninu haldlagður af tollgæslu.

Það er á allra vitorði, að langt leiddir sprautufíklar, sem teljast víst vera u.þ.b. 700 talsins hér á landi, hafa ekki ráð á þessum lúxus, en láta sér nægja amfetamín og sérstaklega efni á borð við Ritalín eða annað læknadóp sem mæður eða feður óstýrilátra stofnanabarna selja til að drýgja framfærslu sína.

Fyrir síðasta bankahrun, þá var kókaín neyslan alveg á fullu, eins og menn rekur minni til, en nú þegar bankarnir hafa hægar um sig, veita þá ekki ótrúlegar framkvæmdir, fáránlegir draumar og hrikaleg fjárhagsstaða borgarinnar í það minnsta tilefni til að hringja einhverjum aðvörunarbjöllum?


mbl.is Flugvöllurinn á útleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband