Hæstiréttur er sjálfum sér líkur.

Ef ég skil niðurstöðu þessa dóms Hæstaréttar, þá er Matvælastofnun dæmd til að greiða matvælaframleiðanda með því lýsandi nafni, Kræsingar, 600 þúsund krónur fyrir að hafa upplýst grunlausa neytendur um eins augljós vörusvik og hægt er að ímynda sér á svokölluðum nautabökum fyrirtækisins, en við rannsókn kom í ljós að ekki fyrir fannst kjötarða, hvað þá heldur nautakjöt í girnilegri böku framleiðandans.

Þessi ótrúlega niðurstaða dómsins er auðvitað rökrétt hvað það varðar, að opinberun rannsóknar Matvælastofnunar virkar eflaust ekki sölu hvetjandi á nautabökur Kræsinga né aðrar vörur þeirra, en er það þá ekki neytenda sjálfra að velja eða hafna þessum framleiðanda?

Hæstiréttur er á framfærslu skattgreiðenda og ber því að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna, sem eru í þessu tilfelli aðeins einfaldir böku neytendur, þó auðvitað megi líka minna á þann dimma skugga sem hvílir yfir þessari ríkisstofnun sem unir sér nú sem fyrr vel við dómsmorð Guðmundar og Geirfinnsmála.


mbl.is Kræsingar höfðu betur gegn Matvælastofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Matvælastofnun er í rauninni dæmd fyrir að bera út róg um fyrirtækið. Þessi tvö sýni voru engan veginn nóg til að draga þá ályktun að fyrirtækið notaði ekki kjöt í bökurnar, hvað þá til að básúna því út um allt, í trássi við starfsskyldur þessarar stofnunar. Ég keypti stundum vörur þessa fyrirtækis og líkaði ágætlega, og það gerðu fleiri. Í rauninni ætti að saksækja einstaklingana sem stóðu að því að eyðileggja rekstur þessa ágæta fyrirtækis og dæma þá í fangelsi. Svona framferði sýnir enginn nema vanhæfir og óheiðarlegir einstaklingar.

Þorsteinn Siglaugsson, 18.5.2017 kl. 20:57

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Eru ekki dómararnir og forstjóri fyrirtækisins í sömu leinireflu, æ ég man ekki hvað leinireglan heitir F eitthvað.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 19.5.2017 kl. 02:22

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég er nú þeirrar skoðunar, að sú aðferð Matvælastofnunar að taka vörusýni matvælaframleiðanda af handahófi án viðvaranar eða annars undirbúníngs gefi einmitt rétta mynd af gæðum framleiðslunar.

Allt mjálm um rógburð og illmælgi vegna þessara starfsaðferða Matvælastofnunar fær mig reyndar til að skilja sjónarmið Jóhanns, hvað leynileg félagsmál hæstaréttardómara varðar.

Jónatan Karlsson, 19.5.2017 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband