Sjálfsskaparvíti.

Þessa hörmulegu árás í Stokkhólmi verður alfarið að skrifa á ábyrgðarlausa stefnu sænskra og evrópskra yfirvalda í flóttamanna- og hælisleitenda málum þeirra.

Fjölmargir eru þeir sem varað hafa við þeim afleiðingum sem í sí auknum mæli blasa við, en eigi að síður, þá er alla daga er rekinn markviss áróður fyrir því að skattpíndir Evrópubúar bæti við með brosi á vör milljónum útlendinga á velferðarkerfi þau sem við höfum lagt hart að okkur að byggja upp fyrir áhyggjulaust ævikvöld.

Það er hálf kaldhæðnislegt að einmitt þau lönd sem lengst ganga í þessum innflutningi, eru einmitt þau sem helst verða fyrir barðinu á grimmd og hatri nýbúana, þó auðvitað megi líka benda á að sum þessara Evrópulanda eru fyrrverandi nýlenduríki og njóta auk þess góðs af stríði og hörmungum vegna stórfelldrar vopnaframleiðslu þeirra, eins og við á við Svía sjálfa.

Hér á Íslandi eru svo ótrúlegt sem það kann að hljóma samtök og einstaklingar sem berjast fyrir að óþekktum og ónafngreindum einstaklingum sé hleypt skilyrðislaust inn á framfærslu íslenskra skattgreiðenda með öllum þeim hörmungum sem það kemur til með að kosta og er öllum meðulum beitt, líkt og upplognar auglýsingar í boði okkar eigin ríkisfjölmiðla, líkt og sú sem hamrað er hvað mest á og segir að rúm 85% Íslendinga óski eftir fleiri flóttamönnum.

Algengasta aðferð þeirra þjóðníðinga sem vilja bjóða alla skilríkjalausa velkomna, hvort sem þeir eru fyrrverandi ISIS liðar eða bara eftirlýstir glæpamenn, er að hræða almenning frá því að láta skoðun sína í ljós með því að ráðast að viðkomandi, hæða, svívirða og væna þá helst opinberlega um mannfyrirlitningu og kynþáttahatur.


mbl.is Telja sig hafa ökumanninn í haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Sæll Jónatan.

Það er ekki hægt að gera sér í hugarlund hvaða hagsmunaaðilar ráða ferðinni í öllum þessum innflytjendamálum allavega eru þau frekar galin út frá þjóðfélagslegu sjónarhorni og í raun niðurbrot á þeirri þjóðfélagslegu gerð sem við höfum búið við um lengri tíma, það er spurning hvort ekki sé komið að vatnaskilum í þessu og almenningur fari að átta sig á þessari ófremdar stefnu þá er hætt við að það sem þau "góðu" kalla Þjóðernisöfgastefnu fari að ná undirtökunum, ég held að við Íslendingar ættum ef eitthað er á milli eyrnanna að hagnýta okkur það að við búum á eyju langt úti í Atlantshafi og nánast engin leið að komast hingað óséður að herða eftirlit með þeim sem hingað koma stórlega og að sjálfsögðu snúa þeim við snarlega sem hafa vafasöm skilríki.  

Hrossabrestur, 8.4.2017 kl. 12:42

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Hrossabrestur.

Auðvitað eigum við Íslendingar að byrja á að yfirgefa Schengen-sambandið og taka upp virka landamæra gæslu.

Okkur almúganum er talin trú um að þessu flóttafólki sem bjargað er á Miðjarðarhafi og siglt með í framfærsluna í Evrópu sé gert að greiða 5 – 10.000 dollara fyrir sjóferðina, en afhverju í ósköpunum ætli þetta fólk fljúgi þá ekki bara hingað margfalt ódýrara með KLM eða Lufthansa?

Það er að sjálfsögðu vegna þess að þessum flugfélögum yrði tafarlaust lögum samkvæmt, gert að flytja þessa ólöglegu farþega til baka auk hárrar sektar, eins og handónýtar liðleskjur og mútuþegar niðri á Austurvelli ættu að sjá sóma sinn í að fyrirskipa öllum flug- og skipafélögum að framfylgja hér og það tafarlaust.

Jónatan Karlsson, 8.4.2017 kl. 18:03

3 identicon

Sælir - Jónatan sem og aðrir gestir, þínir !

Ekki hægt annað: en að taka undir sjónarmið ykkar Hrossabrests:: beggja.

En - bæta vil ég því við, að REKA ætti alla þá Múhameðsku af landi brott, sem fyrir eru hér: nú þegar.

Og: svipta þann hluta þeirra, sem íslenzkt ríkisfang hafa / algjörlega !

Rumpulýður af 1.° / líkt Kommúnistum og Nazistum, forðum.

Með beztu kveðjum - sem oftar, af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.4.2017 kl. 21:44

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það sem islendingar eiga að byrja á er að sópa öllu þessu rusli sem kalla sig þingmenn út úr hrollvekjuhúsinu við Austurvöll.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 9.4.2017 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband