Ósannfærandi leiðrétting.....

Þessi látlausa kurteisislega fréttatilkynning er lítilsvirði gegn litskrúðugri umfjöllun um plastagnir í einmitt NIVEA vörum, sem kom fram bæði skýrt og greinilega í umfjöllun sjónvarps í fréttatíma.

Ég furðaði mig á þessari umfjöllun og beinskeyttum árásum á þetta þekkta fyrirtæki og minnist þess reyndar að hafa hugsað að svona ótrúleg árás á nafngreinnt fyrirtæki myndi hafa stórfelld málaferli í för með sér, sama hvort plastagnirnar væru til staðar í vörunni, eður ei.

Það er kannski vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig og finna annan framleiðanda sem er alveg sannfærður um ágæti vöru sinnar.


mbl.is Engar plastagnir í vörum frá Nivea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband