Sjálfsögð kvenréttindi

Það hlýtur að vera eðlileg krafa ungra íslenskra kvenna á framabraut að þær geti notað dýrmætan tíma sinn betur en að kjaga um óléttar, með öllum þeim óþægindum sem því fylgir, svo ekki sé minnst á ótímabær endalok stinnra brjósta og maga, auk annara ámóta fylgifiska.

Hvað þessar staðgöngumæður varðar, sem augljóslega hafa ekkert betra við tímann að gera, en að liggja fyrir í makindum í þessum svokölluðu "útungunarstöðvum" sem sýndar hafa verið í sjónvarpi, þá hvarflar hreinlega að manni að þessi dægradvöl kvennanna gæti nýtst fánaberum kvenréttinda í norðri til frekari dáða.

Þröngsýnn og illa innrættur vinnufélagi hafði nýlega uppi orð um að nær væri að þessar barnlausu "framakonur" gætu eins eytt nokkrum krónum í að bjóðast til að greiða fyrir meðgöngu og líf einhverra þeirra þúsund fóstra sem slegin eru af árlega á kvennadeild Landspítalans og læt ég því án ábyrgðar þá undarlegu uppástungu hans fljóta hér með.


mbl.is Staðgöngumæðrun tekin fyrir í febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband