Líkist helst örvæntingarfullri gagnárás.

Þessar hamslausu og greinilega samhæfðu árásir á Donald Trump vekja óneitanlega grunsemdir um að Hillary og klíka hennar búi sig undir erfiðar sjónvarps umræður í nótt.

Það er erfitt að geta sér til um hvernig Trump muni haga atlögu næturinnar, en líklegt virðist að flugumenn Hillary hafi haft veður af einhverju svo ógnvekjandi, að ástæða þyki til að dusta rykið af tíu ára gömlum karlrembu yfirlýsingum andstæðingsins og kick-starta estrogen flæði bandarískra feminista.

Það liggur í augum uppi að ef Hillary væri eins örugg á sigurbraut og fjölmiðlar vestanhafs láta, þá myndi hún ekki ótilneydd grípa til neðan buxnastrengs árása úr eigin brothætta glerhúsi – eða hvað?


mbl.is „Nóg komið!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öruggt að kjósa Flokk fólksins og Íslensku þjóðfylkinguna.

Eftir réttar þrjár vikur gengur þjóðin til afdrifaríkra kosninga, sem krefjast þess að hver landsmaður nýti rétt sinn til að hafa áhrif á úrslitin.

Þessar kosningar gefa nú í fyrsta sinn þeim stóra hluta Íslendinga sem gjarna er kenndur við undirmál meða hinna efnameiri, kost á að koma eigin fulltrúum á þing.

Þúsundir Íslendinga munu kjósa breytingar og merkja við X-F, Flokk fólksins og öruggt verður að teljast að þeir mörgu sem leggja ofuráherslu á einarða gæslu landamæra, laga og réttar munu sömuleiðis tryggja X-E, Íslensku þjóðfylkingunni örugg sæti sæti á Alþingi.

Keyptar skoðanakannanir virðast sýna þorri þjóðarinnar muni kjósa óbreytt valdahlutfall silfurskeiðanna en án þess að fullyrða að sumar þessar kannana séu beinlínis falsaðar, þá eru t.a.m. allir eldri en 67 ára sniðgengnir í þessum könnunum.

Auðvitað ættu lítil framboð sem ítrekað í kosningum (ekki einungis í skoðanakönnunum) hafa sýnt og sannað áþreifanlega að þau hafa einhverra hluta vegna ekki þann kjörþokka sem krafist er, að brjóta odd af oflæti sínu og ganga af fullum þunga til liðs við X-F eða X-E og er ég þá auðvitað að höfða til ágætra félaga Alþýðufylkingar, Húmanista og Dögunar.


mbl.is Magnús Þór leiðir lista Flokks fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. október 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband