2.10.2016 | 18:25
Lilja Dögg næsti formaður Framsóknar.
Nær öruggt verður að teljast að Framsókn með Sigurð í sæti formanns sé á leið inn í dimman dal og muni í besta falli verða á stærð við örframboð svipað Bjartri framtíð eða Dögun að þessum kosningum loknum.
Ef tíræður öldungurinn ætlar lifa atlöguna af og taka virkan þátt í íslenskum stjórnmálum næstu áratugi, þá verður sigurreifur sigurvegarinn að slíðra rýtinginn og stíga nú þegar til hliðar fyrir varaformanninum, því enginn einstaklingur er mikilvægari en flokkurinn – eða hvað?
Sigurður Ingi kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Í tilefni drottningarviðtals við Davíð Þór Jónsson, sem hefst á að hann segist hafa hent gamla sjálfinu í ruslið og lýkur loks á að hann óttist mest af öllu annara manna heimsku og óttavæðingu þeirra er setja vilja skorður við óheftan straum múslimskra karla til landsins.
Ég nenni ekki frekar að útlista áliti mínu á glænýjum presti góða fólksins í Laugarnesi, en minni hann og söfnuðinn aðeins á eftirfarandi málshátt:
“ put your money where your mouth is”
Henti gamla lífinu í ruslið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |